Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Goodbye (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
hér kem ég með eitt ljóð, sem finnst kannski eitt það fallegasta sem ég hef samið, en kannski er það bara af því að mér finnst það svo persónulegt. veit ekki. en fyrsta erindið þekkið þið örugglega öll, ég fékk innblástur ur þessu lagi en man ekki hvað lagið heitir. það er svoldið langt þetta ljóð, kannski frekar langdregið, en sumu er erfitt að sleppa, og það má kannski segja það sama um manneskjuna sem ég orti ljóðið um. I wish I could just make you turn around, turn around and see me cry....

Sorgin nagar (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Sorgin nagar þessi yfirþyrmandi tómleiki hvað get ég gert hvað get ég gert Ég vona að þetta sé ekki satt Ég sé þig aftur á morgun Ég ætla að hringja í þig bara til að vera viss En fæ bara talhólfið Þá loksins uppgötva ég að þú ert farinn farinn að eilífu Sorgin nagar hjartað ég hefði getað hjálpað ef ég hefði hringt ef ég hefði komið ef….. svo mikið af ef…. svo mikil sorg…. svo mörg tár….. svo mikill söknuður…. hvað get ég gert hvað get ég gert höf/spotta 01

Hraðnám (2 álit)

í Skóli fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég er að velta því fyrir mér hvort einhver viti um heimasíðu eða eitthvað álíka fyrir hraðnámið sem var auglýst í sjónvarpinu. Veit einhver um þetta mál??? Mig langar virkilega til þess að komast að þessu. kv.spotta

Þegar... (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þegar ég vissi ekki, drakk ég. Þegar ég vissi, var ég efins. Þegar ég ákvað, var ég sorgmædd. Þegar ég skipti um skoðun, var ég hamingjusöm. Þegar ég gekk með þig, var allt svo gott. Þegar ég var að fæða, vildi ég verkjalyf. Þegar ég fékk þig í hendur mér, Gleymdi ég öllu öðru. Þegar þú drakkst fyrst úr brjósti mínu, fylltist ég gleði. Þegar þú svafst, fylltist ég ótta. Þegar þú stækkar, tek ég myndir. Þegar þú brosir, snýst hjarta mitt í hringi. Þegar þú knúsar, get ég aðeins hugsað um það...

Breyttur tími (ekki alveg viss með nafnið) (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Er ég hugsa til þess tíma, sem allt leit öðruvísi út. Kjóllinn minn var síður og hörund silkimjúkt. Nú er tíminn breyttur og allt er orðið kalt. Styttan stendur útúr, hjarta mitt er halt. Svífur yfir engi, sá tími er hér var. Hvar er aftur orðið, orðið um hjartarbrest. höf/spotta

Hegðunarvandamál. (22 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Nú er ég í svolitlum vandræðum með Mósa minn. Málið er það að hegðun hans hefur breyst svo mikið síðustu tvær vikur. Hann er 1ns og hálfs. Hann er byrjaður að naga aftur allt sem hann kemst í. Hvort sem það er þvottakarfa eða skór. Svo er hann hættur að hlýða þegar ég sleppi honum lausum, hvort sem það er á opnu svæði eða hérna úti í garði. Eins og t.d. í morgun. Þá sleppti ég honum út í garð að gera sitt og svo þegar ég kallaði hann inn 10 mín. seinna þá fór hann yfir í garðinn hinumegin,...

að gefast upp (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Er ég leitaði að þér, fann ég þig ekki. Ég rakst á marga sem líktust þér, en fann einungis tómleika. Á endanum gafst ég upp, Ég gat ekki fundið þig. Ég vildi vera ein, hætti að fara út, hitti aldrei fólk. Ég var ein. Þegar ég var loks búin að gefast upp, gefast upp á lífinu og sjálfri mér, þá hitti ég þig. Ég sem var búin að leita, leita svo lengi. Loksins fann ég þig. Þú steigst inn í líf mitt og inn í hjarta mitt. Án þín væri ég ekki hér. Og ég þakka guði, fyrir það á hverjum degi, fyrir...

I thought I was... (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
I thought I was sad. I thought I was blue. That the night would never end. I went for a walk, I saw everybody were happy. I took the train, everyone were quiet. I thought I was alone, alone, sad and blue. But then I saw two children. Almost no clothes, and no hope for them. I realised, I was not alone, I was nothing. höf/spotta

sprauta - óróleyki (3 álit)

í Börnin okkar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
hæhæ málið er þannig að ég er með fimm mánaða gamlan son og hann var í sprautu á mánudaginn. Síðan þá hefur hann verið rosalega órólegur, vill helst alltaf bara vera í fanginu á okkur og verður svo rosalega sár ef við tökum hann ekki upp að hann fer bara að hágráta ( hann grætur yfirleitt ekki oft). Staðurinn sem hann var sprautaður er enn svolítið upphleyftur, og mig grunar að það hljóti að vera að pirra hann. En hann er ekki með hita, og ég sé ekkert bóla á tönslu (en datt það í hug líka)....

Hundar segja staðreyndir! (2 álit)

í Hundar fyrir 21 árum
hæhæ Ég er ekki alveg viss hvort þetta virki en ætla samt að reyna að setja þetta hér inn. Hér eru nokkrar staðreyndir frá sjónarhorni hunda. Þið getið séð þær ef þið farið á þessa síðu :) http://www.sendafriend.com/DamnHumans/default.a sp?ID=20275628 Prófið þetta og þá kannski skiljið þið voffa littla aðeins betur :) kv. spotta

Rauð augu og miklar stýrur (3 álit)

í Hundar fyrir 21 árum
hæhæ, Ég er að vonast til þess að einhver geti sagt mér hvað er að honum Móza mínum. Þegar við vöknuðum í morgun og tókum stýrurnar úr augunum á honum eins og alla daga. Þá fórum við að taka eftir því að það safnaðist svo fljótt stýrur í vinstra auganu á honum, og þegar við skoðuðum betur þá sáum við að hvítan var smá rauð. Við héldum að kannski einhver kisinn hefði klórað hann. Svo fórum við út í kvöld og þegar við komum heim þá var augað orðið eldrautt og hitt augað er að byrja að verða...

mikill sársauki, meiri gleði (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Núna hlýtur að fara að koma að þessu. Það hlýtur að fara að koma. Í níu mánuði hef ég beðið eftir því. Ég hef beðið og á meðan hef ég fylgst með maga mínu stækka. Fundið fyrir þessu litla lífi inní mér, lifna og dafna. Þessi tilfinning er ótrúleg. Fyrstu mánuðina, þá finnuru í rauninni ekki neitt fyrir barninu. Þú veist af því og finnur kannski einhverjar smábreytingar á sjálfri þér. En það er allt og sumt. Þú getur ekki séð það í spegli og enginn tekur eftir því. Ekki fyrr en maginn stækkar...

Hvað er (elsta) barnið þitt gamalt (0 álit)

í Börnin okkar fyrir 21 árum, 2 mánuðum

mælt með barsmíðum???? (63 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hæ Hæ Ég er sona aðeins að velta fyrir mér. Systir mannsins míns var hérna hjá okkur í dag. og hundurinn minn er alltaf frekar æstur þegar það koma gestir, reynir að hoppa á það þegar þau koma í heimsókn og svona. Og svo er hann nýbyrjaður á því að fara að reyna mörkin aftur, þ.e.a.s. hann reynir að fresta því að hlýða okkur eins lengi og hann getur og stundum sleppir hann því alveg. Og þegar hún sá það í dag, þá byrjar hún á því að segja; þið þyrftuð bara að taka spítu og lemja hann duglega...

grimmd (42 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég þoli ekki þegar fólk er vont við ketti. Það er einn hérna á svæðinu, sem þolir ekki að kettirnir í kring fari inn á lóðina á sér, svo hann skýtur þá með loftbyssu. Kisan okkar var svo hölt um daginn að hún gat ekki stigið í eina afturlöppina og við vorum að pæla hvað gæti hafa komið fyrir, þá kom litli bróðir minn og sagði að þessi maður hefði komið og spurt hvort við ættum þennan kött. Hann hefði verið að skjóta á hann með loftbyssu því hann væri að þvælast í garðinum sínum. :( :( Ég...

aðskilnaðarfælni (7 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
hmmm, ég á við þetta vandamála að stríða með hundinn minn. Hann er 10 mánaða og búinn að vera hjá okkur síðustu 8 1/2 mánuð. Það er ekki hægt að skilja hann eftir einan. Þá tekur hann og rústar öllu. Og eins ef við erum heima, þá eltir hann okkur út um allt og getur ekki hugsað sér að vera einn. Hvernig er hægt að hjálpa þeim með þetta vandamál??? Honum gekk vel á tímabili, þá var hægt að skilja hann eftir í 2-3 tíma og allt í lagi þegar við komum heim, en svo núna, þá rífur hann upp teppinn...

heimasíður (2 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Halló Ég er að leita að heimasíðunni hjá Gallerý voff (ef hún er einhver) veit einhver linkinn þangað??

1.hluti ( á eftir að finna nafn) (1 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Lífið heldur áfram, er einhversstaðar sagt. Og það er víst sama hvað gerst hefur. Ég hefði aldrei trúað því, eftir að þú fórst frá mér. Ég hélt ég myndi deyja. Mér var svo illt inni í mér. Hjartanu, hefðu sumir sagt. En ég trúi ekki á það. Bara skynsemina sem heilinn býður uppá. Það var henni að þakka að ég kynntist þér. Hefði ég ekki sýnt skynsemi og mætt í vinnu þennan dag, þá hefði ég aldrei kynnst þér. En þú hefur alltaf agt að ég sé köldhjörtuð. Kannski var það satt. Ég vildi ekki trúa...

Bara ganga (3 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég sit hérna og er að hugsa um hvað ég á að gera. Ég er að fara í skólann á morgun, og á að skila einhverri helv. sögu. En ég veit ekkert hvað ég á að skrifa um….. Ég gæti skrifað um dag í lífi mínu. Hmm…. Nei, það myndu allir sofna yfir henni ég lifi svo leiðinlegu lífi. Hvað á ég að skrifa um. Ég ákvað að fá mér göngutúr til þess að fá einhvern innblástur. Ég fer niður í garð, og labba aðeins um. Alltíeinu sé ég hvar tvær hvítklæddar verur labba í áttina að mér. Vá, eru þetta englar? Hugsa...

Your family (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Family things are kind a strange things. You don't love it when you've got it, and you wanna go away. As soon as you go away, you wanna go back. What is that thing that draws you back. That makes you miss them. You keep trying to go away, but you're always forced to go back. By some inner strength you don't know. One day you realise how much you love them, and you don't wanna go away, to find some inner peace. You want to spend the life with the people you love. Before it's to late and...

Ég get ei (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég get ei sýnt þér hver ég er, ég get ei tjáð þér ást. Ég get ei grátið, ég get ei séð, ég get ei legið í faðmi þér. Í söltum sjónum, sál mín hvílir. Lifir en þó ekki enn. Grætur svörtum tárum niður, niður vanga þinn. Birtan horfin, myrkrið hvílir, lokar hurðum, lokar vegum. Ég get ei losnað, ég get ei farið, ég get ei beðið eftir þér. Tárin losna, augun lokast, hví að bíða eftir þér. Í svörtum sjónum synda tárin, tár iðrana, tár sorga, tár hefnda. Ég get ei grátið, ég get ei séð, ég get ei...

Stupid love! (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Stupid. Is that the word? Is this the right word for love. Love is stupid. Love is so much. Why do we fall in love, when we only get hurt. It's not a usual pain. It's like your mind, your soal and heart are being stabbed. Stabbed with thousund knives Cutting your mind You go insane. You don't think right. You're in love. 12 dosens of roses a shiny golden ring. Maybe couple of children, is this all a fake? Stupid? That's the word for love, that feeling you don't know, but everybody want. What...

Ég er orðin amma :) (12 álit)

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jei, kisan átti loksins í gær 25.mai. :) :) :) Hún var búin að vera horfin frá því um morguninn og við héldum bara að hún hefði farið út að gjóta. En svo í gærkveldi þegar við ætluðum að fara út þá stökk hún fram úr þvottarhúsinu og var búin að gjóta. Þá fórum við að leita að kettlingunum, og heyrðum bara mjálm í einum kisa :( Þeir voru þá á bak við svona hillu sem er alveg við gólfið og nær svona upp að bringu, og hún var búin að eiga þá alveg út í endanum, neðst á gólfinu. Svo við þurtum...

Mig langaði bara í appelsínu..... (5 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mig langar svo í appelsínu að ég er að deyja. Ég ætla út í búð og kaupa mér eina appelsínu. Á ber margt fyrir augu mín, sé mann hjóla, bílar þjóta hjá, fuglarnir syngja og krakkar að leik. Þegar ég geng inn í litlu búðina, var þungt loft næstum kæfandi. Bubbi hljómaði um litlu búðina. Ég geng að appelsínunum og vel mér eina. ,,Halló“, heyri ég einhvern segi, sný mér við en sé engann í kringum mig. Hver var þetta??? ,,Halló hérna niðri.” Segir litla röddin aftur. Ég lít á appelsínuna í hendi...

Geðbilaður og veikur (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Geðshræring! Hugur minn er geðbilaður og veikur. ÉG keyri í hringi. Skil ei hvað ég geri. Niðurnídd hverfi, gömul hús. Ekkert skjól frá illsku hafsins. Ekkert skjól frá skelfingu lífsins. Hamrarnir háir og fagrir, draga mig til sín í illsku sinni. Stríðir straumar, dropa niður. Kinnar mínar, blautar og votar. Fram af hömrum rennur bíll. Glötuð sál sem kemst ei neitt. Ég get ei verið hér, ekkert líf sál mín sér. Eylíf breyting ætluð þér, situr fast í sálu mér. Get ei lifað, verð að hverfa....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok