hæhæ, Ég er að vonast til þess að einhver geti sagt mér hvað er að honum Móza mínum. Þegar við vöknuðum í morgun og tókum stýrurnar úr augunum á honum eins og alla daga. Þá fórum við að taka eftir því að það safnaðist svo fljótt stýrur í vinstra auganu á honum, og þegar við skoðuðum betur þá sáum við að hvítan var smá rauð. Við héldum að kannski einhver kisinn hefði klórað hann. Svo fórum við út í kvöld og þegar við komum heim þá var augað orðið eldrautt og hitt augað er að byrja að verða rautt líka. :( Veit einhver hvað þetta gæti verið???

kv.

spotta og Mózi