Sorgin nagar
þessi yfirþyrmandi tómleiki

hvað get ég gert
hvað get ég gert

Ég vona að þetta sé ekki satt
Ég sé þig aftur á morgun
Ég ætla að hringja í þig
bara til að vera viss
En fæ bara talhólfið
Þá loksins uppgötva ég
að þú ert farinn
farinn að eilífu

Sorgin nagar hjartað
ég hefði getað hjálpað
ef ég hefði hringt
ef ég hefði komið
ef…..

svo mikið af ef….
svo mikil sorg….
svo mörg tár…..
svo mikill söknuður….

hvað get ég gert
hvað get ég gert

höf/spotta 01