Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hvern mundið þið kjósa?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Framsókn

Re: Ein í vandræðum..

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ef mamman segir að þú sért bústin þá ertu allavega eða segja einhvern sannleika. Mamma mín vill halda því fram að ég sé ekki feit en vinkona mín viðurkenndi það loksins fyrir mér um daginn að ég væri með nokkur aukakíló. Sem betur fer þá á ég góða vini sem eru hreinskilnir - þó maður geti þurft að suða soldið lengi í sambandi við svona. Auk þess þá vilja fæstir strákar horrenglur, vilja yfirleitt hafa eitthvað til að klípa í. En sko… ef maður vill grennast þá er bara að breyta mataræðinu og...

Re: ég elska þig á mörgum tungumálum.

í Rómantík fyrir 23 árum, 1 mánuði
Á spænsku geturðu bæði sagt te quiero og te amo. te quiero er notað alveg einsog I love you á ensku - það geturðu sagt við alla sem þér þykir vænt um. Te amo er aftur móti mjög sterkt og þýðir ÉG ELSKA ÞIG

Re: Stjórnmál hinna betur settu

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvernig væri að fá vinstristjórn í 4 ár og bera svo saman hvor stjórnin hefur staðið sig betur?? Við höfum engu að tapa - ekki fyrst samfylkingin hefur enga stefnu (þá er ég að vitna í svar einhvers staðar hérna) og Vinstir Grænir eru á móti öllu og umhverfisverndarsinnar. Það ber líka að hafa í huga að það er mjög einfalt að vera á móti öllu sem er gert, auðvelt að finna eitthvað sem fer úrskeiðis. En þó ég muni ekki kjósa vinstri flokkana þá er ég alveg til í að sjá hvort þeir standist...

Re: Forsætisráðherra sannaður lygari

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þau geta bæði verið lygarar mín vegna…. ekki ætla ég að kjósa þau!!! Ég ætlaði reyndar að verða pólitíkus þangað til mér var sagt að það væri ekki hægt að vera pólitíkus án þess að ljúga - áætlun mín var ákkúrat að verða fyrsti pólitíkusinn til að ljúga EKKI!!! en ef það er ekki hægt þá vil ég ekki verða stjórnmálamaðu

Re: lögleiðing kannabis

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Síðast þegar ég vissi þá bætti heilinn ekki upp fyrir eyðileggingu heilafrumna jafnóðum. Það myndast ákveðin himna í kringum heilann eða eitthvað sem getur tekið mörg ár að losna við. Þeir sem eru búnir að reykja gras/hass í mörg ár eru sljóir og hægir í mörg ár á eftir. Ég er reyndar með lögleiðingu kannabisefna þar sem það er ekki jafnskaðlegt og tóbak en það þyrfti að vera undir miklu eftirliti. Ég ætla ekki að segja neitt um það að aðeins 1 af hverjum 10 verði háður en mér finnst það...

Re: Skiptinám í Paragvæ

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég var skiptinemi í Venezúela í eitt ár, geðveikt gaman. Örugglega eitt skemmtilegasta ár sem ég hef upplifað hingað til. Var eitthvað sérstakt sem þig langaði til að heyra um?

Re: Nám er máttur!

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þetta er rosalega einfalt… ef þú vilt verða eitthvað (þá meina ég eitthvað annað en verkamaður eða afgreiðslukona/maður) þá þarftu að mennta þig. Og maður þarf fyrst að klára menntaskólann til að komast í háskólann. Nám er vinna, en ég er reyndar sammála því að ef fólk nennir ekkert að læra þá er það bara að eyðileggja fyrir sér. Frekar ætti það að fara eitt ár á vinnumarkaðinn og sjá svo til. Ég tók hálfs árs frí og ég ætla sko að fara í háskólanám, þetta geri ég aldrei aftur.

Re: Bekkjakerfi/Áfangakerf? Hvaða skóli er

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég hef verið í bæði bekkjarkerfi og áfangakerfi og seinni kosturinn hentar mér mun betur. Ef ég held áfram að vera soldið dugleg þá næ ég að útskrifast á þremur og hálfu ári (og þá er það bara bekkjarkerfis-árinu mínu að kenna að ég útskrifast ekki á þremur árum) og ég er mjög sátt við það. Bekkjarkerfið var alveg mjög fínt (var í verzló í eitt ár) en hentaði mér ekki alveg nógu vel. Of mikið aðhald og ákveðnir krakkar í bekknum farnir að fara MJÖG mikið í taugarnar á manni. Eins þessar...

Re: Menntamálaráðuneytið

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
heyrðu elskan… ég ætla bara að minna þig á að við, sem höfum íslensku að móðurmáli, þurfum líka að taka próf í tungumáli sem er ekki móðurmálið okkur ef við erum léleg í stærðfræði eða höfum ekki lokið þessum ákveðna einingafjölda.

Re: Að vera nörd

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mjög góð grein…. hef reyndar ekki verið kölluð nörd í mörg ár…. veit eiginlega ekki í hvaða flokki ég ætti að vera nörd… veit ekki svo mikið… kannski spænskunörd???

Re: Raunir Rómantíkers

í Rómantík fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Af hverju er það ókvenlegt að tala um rassa á strákum??? Er þá ekki ókarlmannlegt að tala um rassa á stelpum???? Just wondering!

Re: Ringlaður, Ástfanginn, Reiður

í Rómantík fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég get því miður ekki svarað þessari spurningu “af hverju vilja allar stelpur verða vinir manns eftir að þær rífa úr manni hjartað?” af þeirri einföldu ástæðu að ég efast um að ég hafi rifið hjartað úr neinum. Er frekar góð stelpa þannig séð og ég held að flestir fyrrverandi kærastar mínir séu vinir mínir (ekki það að þeir séu eitthvað svaka margir). Mér persónulega finnst að þú eigir að hætta að tala við þessa stelpu, það kom einn svona gaur svipað fram við mig og ég talaði ekki við hann í...

Re: Flensa2

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Flott hjá þér…. gæti verið ástæðan fyrir því að ég sé ekki komin með flensu (ræktin)… en hérna er búin að vera að pæla að ef maður er grænmetisæta (er að pæla í að gerast þannig, svona mest megnis) hvernig vítamín þarf maður þá að gleypa? hvaða vítamín koma úr kjöti og fisk? auðvitað mun ég borða mjólkurvörur og svoleiðis og kjöt einu sinni til tvisvar í viku en maður hlýtur að þurfa þessi vítamín á hverjum degi….

Re: Formúlan er byrjuð, VEI, VEI!!!

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég var svo ótrúlega sátt við þessa keppni - held reyndar með Ferrari en gaman að sjá hvað McLaren er búið að bæta sig. Auðvitað vona ég að Ferrari standi sig betur næst en þessi keppni var bara svo ótrúlega spennandi - kom oft eitthvað fyrir þannig að fremsti maður missti forystuna. Var Kimi ekki fyrstur þegar hann tók út refsinguna?? Man það ekki alveg en einsog þegar Schumacher var fyrstur þá byrjaði bíllinn að “hrynja í sundur” og Montoya missti stjórnina á bílnum - er ekki nógu mikill...

Re: Hvernig "hösslar" maður

í Rómantík fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Byrjaðu á því að brosa!!!! og… og…. jah… ég kemst yfirleitt ekki lengra í þessu en ég er reyndar svo gamaldags að mér finnst að strákar eigi að taka fyrsta skrefið. ég og einn strákur sem er með mér í ensku vorum að brosa til hvors annars á fullu - svo vissi ég bara ekkert hvað ég átti að gera þannig að ég hætti að horfa á hann… stelst samt alltaf til að kíkja á hann af og til. gangi þér vel p.s. þetta með að vera gamaldags stafar af því að ég er feimin og hrædd við að verða mér til skammar....

Re: Hefurðu hitt einhvern frægan

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Labbaði framhjá Damon Albarn á Laugaveginum fyrir þó nokkuð mörgum árum síðan… svo hef ég verið að deita einn gaur sem er ágætlega þekktur í nokkrum borgum í S-Ameríku (en stefnir á.. heimsfrægð líklega)… mmm… veistu, andsk… ég hef bara varla hitt fræga manneskju - jú, teljast Quarashi ekki með, þeir spiluðu á balli þegar ég var í grunnskóla!!! (vá!!!) nei veistu, ég hef ekki hitt neinn frægan en… hver veit hvað gerist í framtíðinni. Væri samt mest til í að hitta Eminem og spjalla við hann.

Re: Sviti og magaæfingar

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ef þú svitnar óeðlilega mikið (þá er ég að tala um blettir undir höndunum við að labba inn í eldhús) þá skaltu fara til læknis!!! Í sambandi við breiðan maga þá hefur það örugglega eitthvað með líkamsbygginguna að gera. og til að hún þrengist þá þarftu að… jah… ég veit ekki…. veit að mín grennist þegar ég hef verið í líkamsrækt í soldinn tíma en ég veit ekki hvernig þú ert í laginu - kannski ertu rosalega mjó? who knows… en til að þrengja (?) magann þá þarftu engar magaæfingar - bara...

Re: Hvort finnst ykkur flottara..........

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 2 mánuðum
persónulega finnst mér ekkert flottara en hávaxnar flottar stelpur (en þar sem þú ert ekki búin að taka út fullan þroska þá skiptir það engu máli). Þessi fitubolla er greinilega með mikla minnimáttarkennd, auk þess sem að hávaxið fólk kemst upp með að hafa fleiri aukakíló en lágvaxið (ég er gott dæmi um það). En veistu… á þessum aldri eru allir að fara að taka kipp og stækka, stelpurnar eru yfirleitt alltaf á undan strákunum. En þetta lærirðu allt í líffræði. Hafðu engar áhyggjur af þessu,...

Re: ógjeð slega fífla :\\\\

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 2 mánuðum
það var til alveg rosalega gott andlitsvatn (veit að það er meira svona stelpudæmi) sem hét… clearasil, eða cleansil eða eitthvað svoleiðis, hef ekki séð það í smátíma en á því tímabili sem ég notaði það þá fékk ég varla eina einustu bólu. Þær sem voru fyrir urðu fyrst að graftarbólum og svo fóru þær. En ef vandamálið er svona slæmt þá mundi ég leita til húðlæknis!!

Re: NES m/7 leikjum til sölu

í Leikjatölvur fyrir 23 árum, 2 mánuðum
heyrðu í fyrsta lagi stóð tilboðið mitt ekki svona lengi…. í öðru lagi þá hef ég ekki 5000 kr í augnablikinu (sá sem ætlaði að setja út fyrir leikjunum vill ekki borga 5000 kr)… og…. svo hef ég samband við þig eftir 2 daga þú lætur mig vita ef þú selur hana í millitíðinni er ekki staðgreiðsluafsláttur

Re: NES m/7 leikjum til sölu

í Leikjatölvur fyrir 23 árum, 2 mánuðum
5000 kr….

Re: Á ég að hringja

í Rómantík fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Sumir strákar vilja bara fá drátt, hversu sárt sem það er EN það eru góðir strákar þarna úti, það þarf bara að koma auga á þá. Hvort þú eigir að hringja eða ekki er algerlega á þína ábyrgð - ætlarðu að hringja til að skamma hann eða bara til að reyna að tala við hann og spurja af hverju hann hefur ekki hringt í þig. Ein vinkona mín er þannig að hún segist ætla að hringja til að skammast en er svo meira bara að væla (sem betur fer er hún hætt því). Hvað mundir þú gera ef hann verður geðveikt...

Re: Bein í baki

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég er alveg sammála. Er ein af þessum hávöxnu stelpum og á tímabili gekk ég með svona kryppu (hrikalegt), og í dag er ég að reyna að venja mig á að labba bein í baki (það er ekkert mál) en það er mun erfiðara að venja sig á að sitja bein í baki. Það er sko eitthvað sem mér finnst að foreldrar eigi að kenna börnum sínum.

Re: Djöfull er ég góður !

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Til hamingju þið sem eruð hætt í namminu. Með gosið, þá er hægt að fá sér djús í staðinn. Persónulega finnst mér epla- og appelsínusafi betri en kók. Ég er hætt að drekka gos en það gengur erfiðlega með nammið. Mamma mín borðar svo rosalega mikið nammi og skilur þetta eftir út um allt hús (möndlur, Doritos, súkkulaðistykki [heil], vindlar og fleira). Ég hætti einhvern tímann að borða nammi og stóðst það í tvær vikur, þá laumaði ég einu nammi upp í mig. Held stundum að ég muni ekki geta hætt...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok