Sælt veri fólkið :D

Núna er ég 19 ára og það hefur verið vandamál hjá mér í gegnum tíðina að fara að hössla stelpurnar, málið er að mér langar ofboðslega mikið í skemmtilega og sæta kærustu, eiginlega meira en allt.

En hvernig hösslar maður? Verður maður að gera það á djamminu þ.e.a.s. ef maður vill ekki vera að hitta einhverja í vinahópnum (var einu sinni í svoleiðis sambandi og það endaði frekar illa, ekkert alltof illa samt ;0)

En ég spyr, ég er nú frekar feiminn strákur og eina leiðinn fyrir mig til þess að þora að tala við stelpurnar er í gegnum áfengið, en ef ég myndu nú hætta þeim aumingjaskap hvernig á ég að bera mig að? Hvað er það sem þið stelpur viljið svona á daginn þegar þið eruð á Laugarveginum? Finnst ykkur gaman að fá stráka sem henda símanúmerinu í ykkur? Eða eigum við að gera þetta öðruvísi?
Einn desperate!