Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: //NoName//

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Best að segja honum bara allan pakkann og útskýra fyrir honum að þú getir þetta ekki lengur. Annars sýnist mér á greininni að þú sért búin að taka ákvörðun.

Re: Nokkrar ógeðslegar staðreyndir

í Tilveran fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Sweeeeeeeeet Veit ekki alveg hvort ég eigi að hætta að þvo á mér hendurnar eða halda því áfram…

Re: Hvað á að gera við nördana?

í Skóli fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Já, ég var að reyna að segja það við hinn/hina.

Re: Listi yfir verstu fæðutegundirnar

í Heilsa fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Einhvers staðar heyrði ég að það væri betra að borða 10 súkkulaðistykki en einn poka af snakki.

Re: Hvað á að gera við nördana?

í Skóli fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þegar maður er alltaf á undan öðrum í bekknum sínum þá hlýtur það að þýða að maður geri allt heima. Hvaðan kemur þú??? Ég hafði ekkert fyrir grunnskólanum, lærði nánast aldrei heima en var eiginlega alltaf á undan. En mér sýnist þér ekki veita af að fylgjast með í íslenskutímum, læra stafsetningu kannski. Já, þú ættir líklega að byrja að læra heima því þú greinilega þarfnast þess. kveðja snikkin

Re: mátti nú ekki segja manni þetta aðeins fyr

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ókei, ég hló nú svolítið af þessu svari þínu og það fyrsta sem mér datt í hug var: “ég verð að ná mér í einn svona!” Svo kíkti ég á síðuna þína og þvílík snilld. Ég er búin að hlægja svo mikið núna að mér er orðið illt í maganum. Anyways já, ekkert endist að eilífu. Og sú sem sagði að fólk væri enn ástfangið eftir 30 ár þá efast ég um að það sé ástfangið. Þetta er frekar bara vinátta, traust og virðing. Fólki líður vel með hinum aðilanum og til hvers að vera þá að breyta? snikkin

Re: Erfið aðstaða

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Blessuð, Þú vilt vita hvert þið eigið snúa ykkur. Mmmm, fyrst þið verðið að gera eitthvað (sem þið ættuð samt ekki að gera) þá er örugglega best að confronta gaurinn sjálfan, sem sagt Svenna. En það er búið að gera svo mörg mistök að það er alveg ótrúlegt. Mistök #1: Jóna hélt áfram að vera með gaurnum þó hún vissi að hann væri með annarri OG missti meydóminn með honum. Mistök #2: Að segja ykkur frá því að hún væri framhjáhaldið í sambandinu. Mistök #3: Þið að kjafta í þessa Heiðu sem þið...

Re: Nammi namm TÓBAK

í Heilsa fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hæ Unza87 Mig langar að spurja á móti: Hversu mikið af fötum geturðu keypt þér fyrir 1500 kr. á mánuði? Ég get allavega sagt fyrir mitt leyti að ég gæti ekki keypt mikið af þeim, almennileg föt eru svo dýr hérna á Íslandi. Vá, hugsaðu út í það ef það tæki manneskju 20 ÁR að safna fyrir einum bíl. Og hún er ekki einu sinni komin með nóg til að kaupa þriggja herbergja íbúð. Greyið manneskjan, greinilega á lúsarlaunum. 187.000 kr á ári er í rauninni ekki neitt ef maður menntar sig og finnur sér...

Re: Get ekki hætt!

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ertu ekki búin að svara því sjálf hvað þú átt að gera? Það eina sem þú gerir er að halda áfram að setja spurningamerki og/eða bæta EF fyrir framan draumórana. Ef ég verð hrifin af strák sem er með stelpu þá hætti ég bara að pæla í honum. Mjög einfalt og hefur virkað alveg ágætlega.

Re:

í Smásögur fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hæ, hæ gattuso Þú hefur greinilega hugmyndaflugið í lagi en ef þú ætlar að hafa söguna ótrúverðuga ættirðu kannski að velja þér annað svið en eiturlyfjaheiminn (frekar hrollvekjuna eða ævintýri/fantasíur). Ef þú mundir aðeins tala við fólk sem hefur verið í svipuðum aðstæðum og Jón í byrjun sögunnar þá sæirðu strax villurnar í sögunni þinni. Annars er hugmyndin rosalega góð en ég held að það þurfi að vinna aðeins með hana, uppsetningin er skemmtileg og spennandi. Góður endir (fyrir utan...

Re: wtf!!!!

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
og fegrar það þig eitthvað??? Þú ert samt sem áður sú sem samþykkti að gera þetta. Vonandi fer einhver strákur svona með þig þá sérðu hvað þetta er ógeðslegt og ömurlegt.

Re: 'Osk um alvöru flokk

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég er nú ansi hrædd um að ég yrði rökkuð niður ef ég færi í framboð í dag, mér fannst síðustu alþingiskosningar einkennast af skítkasti og niðurrifi. Hvenær á að byggja upp? En maður þarf líka að kunna að nýta sér allan skítinn sem kæmi upp og ná til fleiri kjósenda ;o) kveðja snikkin

Re: Þetta er svo fyndið ;)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 3 mánuðum
hvernig gerir þetta okkur öðruvísi en guð skapaði okkur? Við erum jú en með það sem guð gaf okkur, það er bara byrjað að skreyta það.

Re: wtf!!!!

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
bíddu… og þú ert að reyna að segja hvað? Ertu að reyna að kenna honum um eitthvað? Ertu kannski að reyna að segja að hann sé eitthvað furðulegur? Áður en þú ferð að segja e-ð um gaurinn skaltu líta í eigin barm. Greyið drengurinn að hafa kynnst þér, hvernig liði þér ef einhver myndi leika sér með tilfinningar þínar? Ef það hefur verið gert við þig þá hvernig í fjandanum gastu gert þetta? En já, hvað finnst mér um þetta? Mér finnst þetta segja miklu meira um þig en nokkurn tímann um hann.

Re: 'Osk um alvöru flokk

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ef það verður eitthvað vit í þessum flokki þínum og þú(þið) verðið trúir sannfæringum ykkar þá held ég að flestir muni kjósa þig (ykkur). Gangi þér vel snikkin

Re: 'Osk um alvöru flokk

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þú óskar eftir “alvöruflokki” en virðist ekki vera tilbúinn til að gera neitt sjálfur. Hvers vegna? Hvernig væri að þú myndir nú bara drífa þig í að stofna eigin flokk? Þú getur ekki beðið aðra um að framkvæma þína hugmynd. Kannski hugsa hinir þannig líka: “Æ, fyrst það eru svona margir sammála því að það vanti nýjan flokk þá hlýtur einhver að stofna nýjan flokk.” Gangi þér vel í nýja flokknum þínum, kveðja snikkin

HA? Er lélegt sjálfstraust afsökun?

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Glæsilegt að Bamboo sé komin með meira sjálfstraust og allt það. En ég bara verð að bæta við: Af hverju reynirðu að réttlæta það að hún hafi haldið framhjá? (Sbr. “En þú skilur ekki að …”) Hvernig geturðu fullyrt það að strákar lendi venjulega ekki í svona og komið svo með anorexíu/búlemíu-viðmiðun? Geta strákar ekki verið með lítið sjálfstraust án þess að vera geðveikir? Auk þess þá hef ég aldrei heyrt að lélegt sjálfsálit og/eða lítið sjálfstraust sé notað sem afsökun fyrir framhjáhaldi....

Re: Er ekki í lagi?!?!

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Það vita ALLIR sem eru reglulega á huga að flest allar greinar fá skítköst. Málið er að þegar fólk gefur af sér þá gefur það um leið höggstað á sér. Ég skil að það eina sem hún vildi var hjálp en hún hefði átt að snúa sér til annarra en notenda huga til þess. Inni á milli skítkastanna leynast þó yfirleitt einhverjir gullmolar. Nú hef ég ekki lesið þessa fyrri grein Ba(eitthvað) og reyndar er mér alveg sama. Ég er að komast á þá skoðun að maður eigi bara að halda sér og sínu út af fyrir sig....

Re: Dómararnir gerðu út um leikinn

í Handbolti fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Dómararnir hefðu getað staðið sig betur en ef það er eitthvað sem ég hef lært af því að keppa í íþróttum sjálf þá er það að þegar dómarinn hefur flautað leikinn af - þá er leikurinn bara búinn og kominn tími til að undirbúa sig fyrir næsta leik. Við lékum nú ekkert vel í seinni hálfleik en það er erfitt að ná sér á strik eftir að hafa verið aðeins þrír inn á og ekki skorað mark gegn sjö mörkum andstæðinganna. Það þarf líka að taka í reikninginn að það heyrðist ekkert “áfram ísland”, allir...

Re: Þetta er að skella á!

í Handbolti fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Takk fyrir það, maður veit þá hvert maður á að fara í stemminguna á morgun.

Re: Þetta er að skella á!

í Handbolti fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hvar ætlar fólk að safnast saman til að horfa á landsleikina (á hvaða pöbbum o.s.frv.)??

Re: Réttur - Hver á réttinn ?

í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Mín skoðun (sem þarf ekki að vera rétt) er sú að sá sem bakkar er ALLTAF í órétti. Ef X bakkar á Z sem er að keyra út af bílastæði þá er X í órétti. Þannig er að frá mínu sjónarhorni. En einsog ég sagði þá þarf sú skoðun ekki að vera rétt. kveðja, snikkin

Re: Lögleiðing Vs Bann

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég er nú ekki sammála því að maður lokist af við kannabisreykingar (þar sem ég kannast við fólk sem er í þessu og það hefur ekki lokað sig af ennþá). Ætli það sé ekki bara mismunandi eftir hverjum og einum. En af hverju hefur ekki verið sannað að hass sé 10x meira krabbameinsvaldandi en sígarettur? Ef það er svona óhollt þá er bara hægt að leyfa maríjúana í staðinn - það er ekki reykt blandað saman með tóbaki. Eða það var allavega ekki reykt þannig fyrir nokkrum árum. Það hefur ekki alltaf...

Re: Lögleiðing Vs Bann

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Málið er að ef kannabis yrði lögleitt sem lyf þá yrði það misnotað (örugglega e-ð svipað og með morfín). Þar af leiðandi yrði allt við það sama nema nokkrir sjúklingar gætu linað þjáningar sínar (sem er auðvitað gott). Þó áfengisneysla hafi aukist þá er málið ekki að banna það. Ekki frekar en að banna sígarettur. Ég held að það yrði ansi tómlegt hérna á Íslandi ef sígarettur og áfengi yrði bannað. Ég samt skil ekki af hverju ekki er hægt að hafa lögin svipuð og í Hollandi. Hafa kaffihús þar...

Re: Stelpurnar svari..

í Rómantík fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég er nú rétt nýkomin á þrítugsaldurinn svo ég ætti að teljast nógu gömul til að svara þessum spurningum. En einsog með allt annað þá er þetta misjafnt eftir persónum. Virkilega flottur gaur sem er 24 ára og hefur aldrei verið í sambandi er of mikið fyrir mig. Það finnst mér gefa þau skilaboð að eitthvað sé að stráknum eða hann hommi (sem er auðvitað ekkert vandamál). Eftir að hafa klárað að lesa greinina þína hef ég komist að því að þú annað hvort veist ekki þegar stelpur reyna við þig eða...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok