Jæja góðir hálsar, ég skrifa þessa grein vegna þess að ég veit í rauninni ekkert hvernig ég á að snúa mér í þessum ósköpum.
Þannig er mál með vexti að ég á vinkonu sem að var að kynnast strák núna um jólin. Þessi strákur á víst að vera alveg æðislegur(að sögn vinkonu minnar) og þau hafa verið voðalega ánægð saman og allt rosa frábært. Nema hvað auðvitað varð að vera eitthvað sem að myndi eiðileggja þetta allt saman. Vinkona mín er framhjáhaldið í hans sambandi! Þessi strákur sem við skulum bara kalla Svenna er búin að vera með kærustunni sinni í meira en 1 og hálf ár. Þegar þetta allt byrjaði voru sumar af okkur vinkonunum ekki samála hvor annarri, sumir vildu láta hana heyra það og sumir vildu bara sleppa því og leyfa henni að gera það sem að hún vildi gera. Jæja nóg með það, svo þegar að vinkona mín(köllum hana bara Jónu) og Svenni voru búin að vera að leynast með þetta í um það bil 10 daga segir hún okkur að hún hafi misst meydóminn með honum kvöldinu áður! Við vorum allar í sjokki yfir þessum fréttum vegna þess að hún var búin að segja við okkur að hún myndi aldrei gera það með honum svona snemma, en svona þróuðust málin. Ég verð kannski að taka það fram að kærasta stráksins er víst rosalega eigingjörn á hann og leyfir honum nánast aldrei að fara að hitta vini sína eða aðra en hana. Þannig að það er svona nokkuð ljóst að vinir hans þola hana ekki vegna þessa. Anyways svo núna er liðinn mánuður og þau eru enn að leynast með þetta og Svenni er ekkert á leiðinni að segja Möggu frá þessu. Jóna er orðin svolítið pirruð á þessum aðstæðum því að henni líður alls ekkert vel. Einn daginn í skólanum erum við stelpurnar að ræða þetta allt saman þegar að ein af stelpum sem að við erum með í skóla kemur til okkar og vill endilega fá að vita hvað við séum að tala um. Ég vill taka það fram að þessi stelpa hefur ekki gert neitt annað en að vera góð við okkur og okkur fannst við alveg geta treyst henni fyrir þessu alveg einsog mörgu öðru. Þannig að við segjum henni frá þessu og viti menn, hún lofaði okkur því að hún myndi sko ekki segja neinum frá þessu og að við gætum sko alveg treyst henni. Svenni á marga vini í skólanum sem að ég er í en hann er samt sem áður í öðrum skóla. Svo gerist það sem að við vissum að myndi gerast(en kannski ekki á svona rosalega vondan hátt) að allt heila klabbið kemst upp. Ég var að labba útúr tíma þegar að einhver strákur spyr mig hvort að vinkona mín Jóna sé að halda framhjá með Svenna. Ég auðvitað segi nei og að þau séu ekkert annað en vinir og þá segir strákurinn að annað sé hann að heyra um skólann! Þegar ég svo hitti Jónu segi ég henni fréttirnar og hún fer beint og talar við einn af vinum Svenna og spyr hann hver það hafi verið sem að hafi verið að skálda þessa vitleysu og hann segir að það hafi verið Óli sem að hafið verið að segja frá þessu og að hann hafi frétt þetta af litlu systur sinni sem að hafi fengið að heyra allt um þetta. Jóna spyr hver þessi stelpa sér og þá er það engin önnur en Heiða, stelpan sem að við treystum fyrir þessu öllu saman! Við trúðum þessu ekk upp á hana!!!

Allavega núna líður Jónu þvílíkt illa yfir þessu, því að hún vill bara segja við fólk að þetta sé allt satt og halda áfram að vera með honum á meðan að Svenni vill ljúga að öllum að þetta hafi allt verið bull og að hún eigi að hætta að kalla sig Svenna sæta, eyða öllum smsum frá honum og segja við fólk að hún sé enn hrein mey(þ.e.s. ef að hún er spurð). Hann er búinn að sannfæra Möggu um að þetta hafi allt verið lygi og þau eru saman akkúrat á þessari stundu á meðan að Jóna greyið er í rusli.

Hvernig eigum við að snúa okkur í þessu máli?

Hvað eigum við að segja við Heiðu?

Þetta skiptir okkur alveg gífurlega miklu máli, hún er jú okkar besta vinkona

Það væri frábært ef að einhver gæti hjálpað okkur og leiðbeint okkur.
Og plís krakkar ekki vera að gagnrýna stafsetningu eða uppsetningu.
Með fyrirfram þökk, kveðja við allar.
Hakúnamatata…