Ég las grein eftir Baboomio um frammhjáhald, reyndar skrifaði hún tvær greinar og mér fannst tilsvörin ykkar alveg viðbjóður!!! Ok stelpan er alveg miður sín sem sést í greininni og skrifar grein hérna ekki til að vera dæmd heldur til að fá hjálp, hún sagði í greininni að hún vildi ekki fá tilsvör sem stóð að hún væri hóra eða mella því að henni líður nógu illa útaf þessu, en nei þrátt fyrir það ákveða nær allir að sparka í hana á meðan hún er liggjandi. Ef þið hafið virkilega lesið greinina þá hefðuð þið séð að hún er greinilega með vandamál með sjálfsálitið og hún vildi ekki sofa hjá stráknum heldur hoppaði hann á hana og klæddi hana úr fötunum, hún bara þorði ekki að gera neitt því að hún hélt að hann myndi þá ekki viljað hitta hana lengur og baktala hana! Ég er búin að vera dáldið mikið að tala við þennan notenda Baboomio í gegnum skilaboð og msn og hún hefur sagt mér að hún vill eiginlega ekkert vera á huga lengur, hún fór alltaf á huga á næstum því hverjum degi í nokkur ár og hún er einn af þeim notendum sem maður tekur eftir en eftir greinina þá var hún bara hötuð, hún byrjaði að fá ljót skilaboð og henni finnst núna eins og hún sé bara hötuð á huga, hún var að segja að henni langaði að breyta um notendarnafn en hún er samt sár því að hún er búin að vera baboomio í mörg ár og hefur verið mjög dugleg að næla sér í stig og skrifa greinar.

Svo skrifar hún grein um það að hún hafði verið hreinskylin við kærasta sinn og hann fyrirgaf henni. Hún sagði við mig að eftir fyrri greinina ætlaði hún aldrei að skrifa neitt úr persónulega lífi sínu aftur á huga en hún skrifaði bara þessa grein til þess að draga athygli af hinni því að hún var farin að verða þunglind á að lesa þennan viðbjóð um hana. Nei nei ef þessi tilsvör voru ekki bara viðbjóðslegri. Það var sagt, ,,Hann fyrirgaf þér bara því að hann er að pota í einhverja aðra“, ,,þú átt hann ekki skilið”, ,,hann er aumingi að hafa fyrirgefið þér“ ,,Ég skil ekki hvernig hann gat fyrirgefið jafn leiðinlegri manneskju eins og þér”. Mér fannst hún frábær að hafa sagt kærastanum sínum frá þessu! Hann fyrirgaf henni því að hann sá hve mikið hún sæi eftir þessu og honum þykir rosalega vænt um hana. Svo vitið þið bara brot af málinu, þið vitið t.d ekki hvernig þau eru saman og hve góð þau eru við hvort annað þið vitið ekkert um það, þið hafið bara heyrt frá þessum stóru mistökum sem hún gerði!
Svo kom Thursinn……sem sagði ,,ég skil ekki hvernig hann gat fyrirgefið jafn leiðinlegri manneskju og þér" þá er þetta einhver nýr notandi sem segist hafa séð eitthvað sem Baboomio hafði skrifað sem var rosalega pirrandi. Hve mikið gat hann virkilega hafað séð hann var ekki búin að stilla áhugamál sín og var með núll stig. Baboomio grunaði gelgjunr1 en er ekki viss. En ég vill bara byðja Thursann um að rökstyðja það sem hann var að segja því að mér finnst greinarnar hennar góðar og hún er bara góður penni.

Ég spurði Baboomio hvort að ég mætti skrifa þessa grein, hún var ekki viss fyrst því að hún vildi ekki fá svona athygli en sagði svo já því að hún er nógu hötuð hvort eð er það getur varla versnað að hún segir.
I'm not a violent woman. I prefer emotional terrorism.