Ég hefði aldrei byrjað að fikta við þennan viðbjóð (dóp) ef ég hefði vitað hvað ég yrði ruglaður af þessu. Við vinirnir byrjuðum aðeins að fikta eitt kvöldið þegar eldri maður hafði gefið okkur efnin fyrir slikk. Við vorum allt kvöldið hjá sjoppunni og reyktum gras, bruddum e-töflur og urðum alveg “totally fucked up”.
Okkur fannst við vera cool og kölluðum þá sem höfðu eitthvert smá vit í kollinum ræfla og aumingja og margt verra sem passar ekki hérna inn. Eftir aðeins tvær – þrjár vikur var ég orðinn svo háður þessu að ég var byrjaður að skrópa í tímum bara til að hanga og reykja smá hass, og kveikja í mörgum fimmþúsundköllum sem ég hafði verið í allt sumarfríið að vinna mér inn. Þetta var því örðið töluvert vandamál og skólinn hafði samband heim til mín vegna fjarverustunda. Mamma hafði tekið eftir því að ég hafði ekki verið með sjálfum mér og talaði ekki við nokkurn mann. Ég man hún sagði: nonni minn, “ þú sem hefur alltaf notið lífsins og verið svo jákvæður”. Djöfulsins tóma stöppuþvæla ég hafði kannski virkað þannig á yfirborðinu en innra með mér hafði ég alltaf verið í tómu stríði við sjálfan mig. En þarna um kvöldið þegar ég fékk fyrsta skammtinn minn leið mér svo vel í vímunni að ég hélt að þetta væri lækningin. En ég fattaði það síðar að þótt mér liði vel í nokkrar mínútur meðan víman var, en þegar ég var ekki í vímu var ég miklu lengra niðri en vanalega. En eitt kvöldið ætlaði ég að hitta helvítis eldri borgarann sem kom mér í dópið og fá meira af þessu drasli. Við mæltum okkur mót við klukkuna hjá Lækjartorgi kl: 11. Ég átti að mæta þangað með peninginn og hann myndi síðaan hitta mig. En þar sem ég skuldaði honum mikinn pening fyrir ógreiddar dópskuldir varð ég að vinna fyrir skuldinni með því að selja krökkum í grunnskóla Mosfellsbæjar helvítis dóp fjandann. Þar sem ég myndi lenda í helvítis handrukkurunum ef ég neitaði sló ég nauðugur viljugur til. Næsta dag mætti ég því í mínar gömlu þrælkunarbúðir Grunnskóla Mosfellsbæjar.
Þar hafði ég dúxað árið áður svo allir þar þekktu mig sem
fyrirmyndarnemandann Jón Knútsson en ekki sem Nonna dópsala. ég þekkti vel hverjir voru líklegastir til að kaupa af mér efnin svo ég kom mér í samband við þá.
Þeir voru ekki lengi að kaupa allar mínar birgðir og hafði ég því hér með veitt nokkrum saklausum drengjum og stúlkum fyrsta skammtinn sm myndi sennilega stuðla að kvalarfullu tímabili í lífi þeirra. Eldri borgarinn var mjög ánægður og sagði að ég þyrfti aðeins að selja þrjá skammta í viðbót til að losa mig undan skuldinni. Ég fékk það verkefni að selja og afhenta krökkum niðri í bæ. Ég varð bara að tilkynna veikindi í menntaskólann í hamrahlíð og sjá um að slugsarnir sem skrópuðu í skólanum fengju nú örugglega drápstólin í lyfjaformi.
Þegar ég kom niður á Ingólfstorg var þar hópur af krökkum
á hjólabrettum en stærri hópur sat úti í horni reykti og drukku sig blindfull. Ég bauð þeim að prófa efnin og eftir að þau höfðu fundið vímuna keypytu þau gjörsamlega allar mínar birgðir einnig þær sem ég hafði ætlað mér til einkanota. Fyrir einkabirgðir mínar fékk ég þrjátíuþúsundkall. Ég sá því strax að ég myndi græða vel ef ég myndi reka þetta sjálfur. Nokkrum dögum síðar þegar skuldin var greidd keypti ég efni fyrir aleigu mína 150.000 kr.ég var á leiðinni í partý hjá vinkonu minni um kvöldið svo ég tók efnin með. Í partýinu tvöfaldaði ég aleigu mína á 4 klukkustundum bara með sölu á dópi.En þar sem allir í þessum gleðskap voru í algjöru rugli tók engin eftir þegar lögreglan kom á staðinn. Þar sem einn lögregluþjónn kom að mér við það að selja dópið var framtíð mín ekki björt. Ég var færður til yfirheyrslu á lögreglustöðinni og játaði á mig allan verknað.ég var seinna dæmdur í 6-8 ára fangelsi.
Núna sit ég hér inni og skrifa þessa sögu til allra ungmenna í dag. Skilaboðin eru mjög skýr:Aldrei byrja að reykja,drekka eða dópa sig. Það er ekkert cool það eru bara aumingjar sem reykja. Ég eyðilagði níu ár af lífi mínu bara út af dópi.Ég sem var dúx í barnaskóla og átti bjarta framtíð fyrir mér rústaði lífi mínu út af tveimur hlutum:Minni heimsku og helvítis eldri borgaranum sem seldi mér fyrsta skammtinn. ég endurtek það eru aumingjar sem reykja.
Jón Knútsson.
Með þessu bréfi sem fannst í vasa Jóns Knútsonar er hann fannst dauður eftir að hafa hehgt sig í sturtuklefanum á litla hrauni endum við fréttatímann í kvöld.
Góða nótt.