Ferðir Marco Polo, annar hluti. Ferðin yfir Góbí og dvölin í Kína. Til að komast að Góbí fóru þeir, Marco og félagar, frá Kasjgarhéraði til Kotan, átta daga ferð þaðan til Pem, fimm daga ferð frá Pem til Tsjartan, fimm daga ferð frá Tsjartan til Lop og síðan loks frá Lop og yfir Góbí. Öflun drykkjarvatns varð aftur aðalvandmál þeirra, en svo hafði aldrei verið síðan á ferð þeirra fyrir norð-austan Hormús og þurftu þeir að spara vatnið. Í Lop tóku þeir mánaðabyrgðir af vistum og héldu síðan...