Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skitakall
skitakall Notandi frá fornöld 43 ára karlmaður
366 stig

Re: Er Pétur Blöndal hæfur til að vera á þingi?

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
málið er að ríkið á að fara eftir dómnum. Pétur má nú samt segja það sem honum finnst um dóminn. Það sagði einhver að maður með 90 þús borgaði jafn mikla skatta og maður með 400 sem er auðvitað bull. skattur er ca.38% og þegar menn eru komnir í hátekjuflokkinn (held 250 þús)þá borga þeir rúmlega 40% Þegar menn eru með 90 þús. þá borgar persónuafslátturinn þetta af stórum hluta upp. Ég er ósammála dóminum, en ríkið á samt að fara eftir honum.

Re: Frumvarp um áfengissölu í matvöruverslunum.

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Ekkert nema gott mál, það væri óeðlilegt að leggja fram að leyfa sölu á bjór og léttvíni og banna sterka vínið. Við skulum vona að fleiri svona frumvörp verði lögð fram, aukið frelsi einstaklingsins er ekkert nema gott. Ég ætla samt að leyfa mér að efast um að þetta verði samþykkt, líkt og ólypískir hnefaleikar. Hvenær ætlar einhver þingmaðurinn að leggja fram frumvarp um lögleiðingu kannabis, og kanski annara vímuefna?

Re: Rosa álag á Ingibjörgu Pálmadóttir

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
ég held að þetta sé bara stórt plott hjá framsóknarflokknum. Framsóknarflokkurinn er alltaf að minnka í fylgi, það er verið að skíta yfir ríkissjórnina og Ingibjörgu, framsókn er að leyta eftir því að fólk vorkenni henni fyrir “að leggja hart að sér” og hætti að vera vont við framsókn. var Þetta ekki bara feik?

Re: Siðmenning er í eðli sínu frelsishaft

í Deiglan fyrir 25 árum, 3 mánuðum
auðvitað er erfitt að setja eitt stórt strik einhversstaðar. Mér finnst ekkert réttlæta það að banna sjálfráða einstaklingi að: Stunda fjárhættuspil Drekka áfengi Reykja Nota vímuefni Velja sitt nafn, hvað sem einhver nefnd útí bæ segir. æi… auðvitað verður kanski einhver fúll eða sár ef einhver annar er alltaf blindfullur, en sá blindfulli er ekki að skaða neinn þannig séð… Það er auðvitað erfitt að skilgreina hvenær einhver verður fyrir skaða, en samt er ég á því að aukið frelsi...

Re: Mannanöfn

í Deiglan fyrir 25 árum, 3 mánuðum
mannanafnanefnd er enneitt ríkisapparatið sem gerir ekkert annað en að eyða peningum skattgreiðanda og hefta frelsi einstaklinga til að ráða nafni sínu eða barna sinna. Niður með Þetta helvíti. Ef það á að banna nöfn sem er hægt að stríða á, þá þyrfti ábyggilega að banna öll nöfn. Gunni…runni skíta tunni… Kalli…kúkur Þóra…hóra og svo framvegis.. Af hverju má ég ekki breyta nafninu mínu í James Bond? - hvað þá skitakall?

Re: Öryrkjamálið

í Deiglan fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Garðar Sverrisson, aðalkallinn í öryrkjabandalaginu öskraði og hoppaði í öllum fjölmiðlum landsins og sagði bara “BORGIÐ STRAX! borgið öllum allt núna!” Málið er að það voru ekki til nein lög sem segja hvað þessir öryrkjar eiga að fá mikinn pening. Þess vegna var ekkert hægt að borga…

Re: Re: Re: Re: Re: Tuttugu fíkniefnamál hjá Ísafjarðarlögreglu....

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
nei, miðað við þær heimildir sem maður hefur, fréttir í blöðum, þá held ég að efnin gætu ekki annað en lækkað í verði því það eru nú þegar risastórir og háir tollar á fíkniefnum. talandi um að lögleiðingin hafi fokkast allstaðar. Já, það fór allt til helvítis þegar við lögleiddum bjórinn, hvaða asna datt í hug að lögleiða bjór? núna eru allir landsmenn alkar og á sjúkrahúsum…. þessi bönn virka engan vegin

Re: Re: Re: Dabbi hinn mikli

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
þó að ég sé hægri sinnaður þá finnst mér ekki að hjón þar sem annar aðilinn er með milljón á mánuði fái sömu bætur og hjónin þar sem annar einstaklingurinn er með 60 þús kall. Ríkið er að eyða fullt af peningum í óþarfa hluti, t.d að hjálpa þeim sem þurfa enga hjálp, þ.e.a.s hjónin sem eru með milljón á mánuði.

Re: Siðmenning er í eðli sínu frelsishaft

í Deiglan fyrir 25 árum, 3 mánuðum
mér finnst frelsi ekki barnalegt! Einstaklingurinn er sífellt að öskra “hvar er frelsið mitt!?” af því að hann er búinn að uppfylla skyldurnar, borga skatta af laununum sínum og fara samkvæmt lögum, lögin eiga að vera til að vernda einstaklinga sem verða fyrir barðinu á öðrum einstaklingum sem geta ekki verið frjálsir án þess að skaða aðra! Einstaklingurinn á að hafa frelsi til að gera það sem hann vill, svo lengi sem hann er ekki að skaða neinn annan!<BR

Re: Re: Mætingakerfisbull

í Deiglan fyrir 25 árum, 3 mánuðum
jongunnar, hvaða máli skiptir það ef nemandi mætir í einn tíma á viku eða 4 tíma á viku ef hann skilar öllu sem þarf að skila og stenst prófin sín?

Re: jafnrétti kynjanna

í Deiglan fyrir 25 árum, 3 mánuðum
þessi kvennabarátta er orðin svo öfgafull að það er ekkert eðlilegt. Það eru til lög sem segja að ef það sækja einhverjir tveir um einhverja vinnu, þá Á konan að fá vinnuna. - hvar er jafnréttið!? Konur eru alltaf að tala um að þær fái minna kaup, það koma fréttir um þetta, en ég hef aldrei séð neitt dæmi, svart á hvítu á launaseðli, mismunandi laun kynjana, getur ekki verið að karlmenn séu í meirihluta í velborguðum störfum?

Re: Hvaða flokk styður þú?

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Porcelina, það er kanski satt að þeir séu byrjaðir á sumu, en þetta þarf ekki að taka svona langann tíma, hvernig var þetta með FBA?<BR

Re: Lög eru sett til að brjóta þau!

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
alveg satt hjá þér, það er alltaf verið að setja lög til að hefta frelsi einstaklingsins… ekki nógu gott mál.<BR

Fólk kýs Davíð útaf því...

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Var Davíð ekki borgarstjóri í einhver ár?, hann er búinn að vera forsætisráðherra í 10 ár - 10% af öldinni. Hann er leiðtogi LANG stærsta flokks á Íslandi. Hann tók við sem forsætisráðherra í kreppu og núna er víst eitthvað góðæri.. (sem reyndar virðist vera að falla í sundur..) þetta er meðal annars að ég held að fólk kjósi Davíð sem stjórnmálamann aldarinnar<BR

Re: Varðandi mynd

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
já, hafa Davíð, Össur og Steingrím Joð… <BR

Re: Re: Lög banna að lögum séi fylgt, vinstri stjórn málið?

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
já, kjósum kommana í VG, því það er ekkert leyfilegt lengur. Ef að það myndi koma vinstri-stjórn, þá yrði enn meira bannað, bannað að fara í ljós, það veldur krabbameini, þá fyrst yrði allt bannað, sjálfstæðisflokkurinn verður bara að gerast frjálslyndari.

Re: Lög banna að lögum séi fylgt

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
já, það er asnalegt að þurfa að borga skatta þegar maður er ekki fjárráða, það er líka asnalegt að 15 ára verði maður sakhæfur en 18 ára sjálfráða.

Re: Re: Tekjutengingar örorkubóta við laun maka

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Aniston; ég er þér hjartanlega sammála mér finnst líka skrítið að sjá samfylkinguna, vinstri hreyfingu vera að kalla “mannréttindabrot, Mannréttindabrot” þegar að aðalorð samfylkingunnar er “Jöfnum leikinn” tekjutenging er ein besta leiðin til að jafna leikinn.

Re: Re: Re: Re: Re: Aumingjar úti í bæ

í Deiglan fyrir 25 árum, 3 mánuðum
það væri fínt að lifa á þessari eyju… þar gæti hver einstaklingur tekið ábyrgð á sér, lífi sínu og gjörðum sínum! Samt held ég að það sé betra að setja kommana útí Grímsey, því ég held að allt frjálshyggjufólk kæmist alls ekki fyrir á Grímsey…en miðað við skrfin hérna, þá kæmust allir kommarnir kanski ekki heldur á Grímsey…

Re: um skoðanakönnun

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
ætti þetta ekki heima á korknum? well.. sjálfstæðisflokkurinn er eini hægri flokkurinn á íslandi. sem þýðir, aukið frelsi einstaklingsins og minni ríkisafskipti, þ.e lægri skattar og meiri einkavæðing. Sjálfstæðismenn mættu nú flýta sér að einkavæða ýmis ríkisrekin fyrirtæk.

Re: Dabbi hinn mikli

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
það gengur auðvitað ekki að örykri sem er gifur einstaklingi með milljón á mánuði fái sömu örorkubætur og örykri sem er giftur einstakling sem er með 60-70 þús. á mánuði. Vinstri flokkarnir hafa barist harkalega til að fá meiri tekjutengingar, en svo er ríkisstjórnin bara glæpamenn ef þeir eru að, eins og samfylkingin myndi orða það “Jafna Leikinn” Það er eimmit með tekjutenginu sem hægt er að “jafna leikinn”

Re: Re: Re: Re: Re: Tuttugu fíkniefnamál hjá Ísafjarðarlögreglu....

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Fairy, þú talar eins og allir verði bullandi dópistar og verði bara veikir af því ef fíkiefni verða lögleidd, ætlar þú að nota fíkniefni ef þau verða lögleidd? Af hverju heldur þú að ef við lögleiðum dóp, að ALLIR fari að nota það og fari á sjúkrahúsin. Með lögleiðingu þá myndi vera hægt að vera með gæðaeftirlit, fólk væri þá ekki að drepast út af rottueitri eða öðru drasli. Jú, einstaklingurinn á að hafa frelsi til að gera það sem hann vill, svo lengi sem hann sé ekki að skaða neinn annan....

Re: Hvaða flokk styður þú?

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir,eða á allvegana að m.a standa fyrir: *Frelsi einstaklingsins *Minni ríkisafskipti - meiri einkavæðing það er samt leiðinlegt að sjá þennan svokallaða frjálshyggjuflokk banna ólypíska hnefaleika og ekki vera búnir að einkavæða rúv, atvr, símann og póstinn.<BR

Re: Re: Re: Tuttugu fíkniefnamál hjá Ísafjarðarlögreglu....

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 3 mánuðum
málið er að það eru settir milljarðar á milljarða ofan til þess að vera í stríði við “fíkniefnadjöfulinn” Þetta er ekki að virka! Lögleiðum öll fíkniefni, setjum á þau tolla, þannig minnkar allur peningurinn sem fer í að stoppa “glæpamennina” sem vilja reykja sinn skít í friði. Einnig kæmi meiri peningur inn í ríkið sem væri hægt að nota til þess að greiða niður skuldir ríkisins(sem eru of miklar) eða gera eitthvað annað við peninginn. Sá sem vill nota fíkniefni, hann hættir ekki við það...

Re: jæja

í Deiglan fyrir 25 árum, 3 mánuðum
mAlkAv: á að vera áfengi í sérverslunum vegna þess að sumir verða ofbeldishneigðir af drykkju! Er heimska að leyfa einstaklingnum að taka sjálfstæðar ákvaðanir Þú lofar verkalýðsfélög og lífeyririssjóði- þeir eru rosagóðir. Ég er sammála því, ef þegar fjárráða(orðið ætti að skýra sig sjálft)maður ræður ekki hvort hann stundi lífeyrissparnað, þar er frelsisskerðing. það skiptir ekki öllu hvort er betra að stunda eða ekki stunda lífeyrissjóðssparnað, einstaklingurinn á að fá að ráða því hvort...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok