Ókei, mitt álit á tekjutengingum við laun maka séu ekki réttlætanlegar. Mér finnst ekki rétt að gera fólk fjárhagslega háð maka sínum hvort sem makinn er með 70.000 eða milljón á mánuði. En eins og Guðni hinn gáfaði landbúnaðarráðunautur benti á, þá hafa tekjutengingar örorkubóta viðgengist í 60 ár. Allir stjórnmálaflokkar hafa setið í stjórn á þessum tíma og ekkert hefur gerst fyrr en í dag, það er gott og gilt að skipta yfir á betri skoðun en stjórnarandstaðan ætti að hafa í huga að kasta ekki grjóti úr glerhúsi.