Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Besti bjórinn - íslenskur

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ha? Lélegur þjóðernissinni? Hvað áttu eiginlega við? Ég hef nú drukkið bjór frá öllum heimsins hornum og af minni reynslu þá (af þeim bjórum sem ég hef drukkið) er sá þýski eða belgíski bestur. Það þýðir ekkert að deila um það, þessar þjóðir hafa bruggað bjór og drykki af svipuðu tagi í árhundruði. Við Íslendingar erum rétt búnir að læra að brugga landa. Það er sem maður geti ekki ritað álit á nokkrum hlut hérna án þess að biðjast afsökunar á því fyrirfram svo maður fái ekki móðursjúkt lið...

Re: Besti bjórinn - íslenskur

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Íslenskur bjór bestur? Góðan og blessaðan daginn. Nei veistu, ég verð nú að svekkja þig á því að annað hvort Þjóðverjar eða Belgar brugga besta bjórinn. Egils og Víking eru ekkert annað en það sem rennur út um skinnsokkinn eftir að hafa drukkið einn Warsteiner eða svo. Ef einhver íslenskur bjór ætti að hljóta titilinn “besti” þá er það vafalaust Thule.

Re: Ytri áhrif á hagkerfi MMOG leikja

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 1 mánuði
Þetta er alveg hreint ljómandi grein hjá þér. Hef nú ekkert sérstakt að segja um málið, í bili, en þessi “iðnaður” er hálfgerð plága. En plágan væri nú ekki til staðar ef ekki væri fyrir ræksnin sem eru löt og nenna ekki að vinna upp sína eigin charactera. Kannski er það bara eitthvað fólk sem vill skoða leikinn, vita hvernig hann er og fara svo annað - eiga hvort eð er nægan pening. Þetta er bara það sama og í öllu öðru, eins og þú bentir á, framboð og eftirspurn. En aftur… ljómandi gott...

Re: Hringadróttinssaga (bækurnar)

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Mig minnir að pakkinn hafi verið til i Mál & Menningu á Laugavegi… gæti samt verið búið.

Re: Nonnabiti

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Þetta stendur í slagorðinu: ,,Nonnabiti - góður biti" Segir allt sem segja þarf. Nauta & osta, beikonbátur með auka beikoni og vel kryddaður… ahh að hugsa um Nonna… en sú sæla.

Re: Aþena

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Klöppum fyrir Finnum.

Re: Baggalútur í Júrósjón næsta ár

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Sammála!

Re: ARGHH !!

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég græt það svo sem ekki að Ísland skulu ekki hafa farið áfram. Tapa ekki svefni yfir því en… Litháen… það sorp, rusl og drasl komst áfram. Allt annað en Litháen. Abba eftirherman frá Eistlandi/Svíþjóð og Belgía hefðu alveg mátt fara áfram en ekki Litháen… ólýsanleg drulla sem það “lag” var og er.

Re: Ráðstefna?

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Landsþing Sjálfstæðisflokksins? Þar koma saman ríkir og valdamiklir menn og konur. Eflaust samt rangt hjá mér :þ

Re: Stattu upp þarna fyllibyttan þín

í Háhraði fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Þetta er ekki fallegt. Bara sorglegt. Hábjartur dagur og maðurinn ekki fær um að standa í lappirnar vegna drykkju eða einhvers annars. Uss. Ljótt að sjá.

Re: Nýjar upplýsingar; Civilization IV: Warlords

í Herkænskuleikir fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Nýlendur hljóma spennandi. Þýsk verksmiðja er líka sniðugt. Þýsk gæði út í gegn. Fæ aldrei nóg af Civ IV (jú kannski á köflum) En gaman að þessu. Hlakka til.

Re: Worms

í Tölvuleikir fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Worms frá 99,9 stjörnur af 100 mögulegum.

Re: Góð hárgreiðslustofa, fyrir stráka

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Góðan dag. Þarftu að sjá um það sjálf að panta tíma fyrir þetta karltetur þitt? Er staðfest meðvitundarleysi hjá manninum eða er hann als ófær um jafn einfaldan hlut og að panta tíma í klippingu? Nei ég veit ekki, ég bara spyr. Svo ég nefni eina þá er, og hefur verið frá landnámi, fínasta klippistofa á Klapparstígnum. Engar tímapantanir.

Re: Jack Bauer

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Góð spurning.

Re: Mozilla eða Internet Explorer

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Lengi lifi Eldrefurinn.

Re: Stevie Ray Vaughan

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Sammála. Maður fær aldrei nóg af SRV.

Re: uppáhalds jazzari

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Davis, sá er nefnist Miles að fyrra nafni.

Re: Zell am see

í Bretti fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Maður verður að líta til Zell við tækifæri. Það er ekki nokkur spurning.

Re: Besta hljómsveit allra tíma?

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Var búinn að nefna hin böndin, tók svo þessa þrjá tónlistarmenn og svo Greyboy….. taldi nokkuð öruggt að stór hluti hugara hafi ekki hugmynd hverjir þeir voru eða eru. Þeirra tónlist er annars konar heldur en sú sem margir hlusta á í dag. Korkahöfundur nefnir t.d. Oasis sem bestu hljómsveit allra tíma sem er svo fjarri sanni - að mínu mati.

Re: Besta hljómsveit allra tíma?

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Besta hljómsveit? Það er klárlega hljómsveit Ingimars Eydal. En svo ég nefni nokkrar án þess að gera upp á milli: The Doors, U2, Led Zeppelin, Queen, Pink Floyd, Creedence, Guns 'n Roses, Cream… já… þetta er svona hluti…. ómögulegt að gera upp á milli. Þó koma félagarnir í Zeppelin kvartettnum sterklega til greina. Af annars konar músík þá koma Miles Davis, Jimmy Smith, Dave Brubeck og Greyboy Allstars til greina.

Re: Sorglegustu lögin

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Nei nei… Vilhjálmur söng það ekki, ef ég man rétt, þó er ég handviss að Haukur Morthens söng það.

Re: 5 Bestu Gítaleikarar Gullaldarinnar ( mitt álit )

í Gullöldin fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Príðis pistill þetta. Skemmtilegt að fjórir þessara gítarleikara eru Englendingar. Aldeilis rjómi sem kemur frá því landi.

Re: Erum við að tala um stríð

í Deiglan fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ég vissi það nú alveg, tók svona til orða.

Re: Fylgja og naflastrengur, hollur og góður morgunverður!

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Þetta hlítur bara að vera bull. Ef ekki þá er manninum ekki sjálfrátt!

Re: Fréttavaktin eftir hádegi á NFS

í Deiglan fyrir 19 árum, 2 mánuðum
að það ætti að neyða fyrirtæki að velja stjórnamenn frekar útaf kyni heldur en reynslu. Svona tal er auðvitað geysilegur yfirgangur og ekki til að auka hróður femínista sem reyna eftir mætti að jafna stöðu kynjanna. Það góða verk sem femínistar hafa unnið fer fyrir bý ef svona fasískar rauðsokkur með strigapoka fyrir skapahár fá að vaða uppi - hindrunarlaust og ókeflaðar. Það að kona í dag skuli fá lægri laun en karl í nákvæmlega sömu stöðu er fyrir neðan allar hellur. En að ætlast til þess...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok