Hmmm, Eraserhead ekki merkileg? Þarna verð ég nú að leyfa mér að vera alveg 100% ósammála þér :) Þetta er með þeim al merkilegustu kvikmyndum sem ég hef nokkurntíma séð og alveg pottþétt mín uppáhalds Lynch mynd. Hún er merkileg fyrir margara hluta sakir, en þó nægir það eitt til að gera hana merkilega að þar má sjá hvernig Lynch setur í raun tóninn fyrir allt sem hann hefur síðar gert, og sýnir það best hversu óvenju hæfileikaríkur og þroskaður listamaður hann hefur verið nánast frá upphafi...