Það er nú svo með forritun eins og mörg önnur fræði að svipaðar spurningar koma upp aftur og aftur. Þess vegna er notendum þessa kerfis hér gefin kostur á því að leita í fyrri spurningum og svörum. Ég ráðlegg þér því að prófa að smella á Leita, á valröndinni hér efst á korknum, slá t.d. inn leitarstrenginn: innihald möppu, og þá ættir þú að fá tengla á nokkur svör við spurningu sem hefur verið send hingað áður og er nánast alveg eins og þín. Ég vil líka leyfa mér að ráðleggja sem flestum...