Fylgjan Æi það er svo langt síðan ég hef sett eitthvað inn hérna að mér finnst ég endilega þurfa að vera með aftur, krúttin mín. Verið brútal! ;)
——————————

Fylgjan


Ég hef staðið við glerið og horft
á tilveru speglast hinumegin gljáans
hreyfing fylgir minni í afleiddu ferli
með tíma og hægð get ég andað og horft í augu spegilsins
og inn í sjálfa mig

og í sekúndubrot hætti ég að anda
ég hreyfi mig ekki
því þá líður það hjá
og splundrast í holdinu