Þegar að klúbbunum fjölgar og það er að gerast óðfluga verður samvinnan sjálfkrafa meiri. Ég held að um leið og búið verður að halda íslandsmót, útnefna landslið o.s.f.v. gerist það sjálfkrafa í kjölfarið. Við hjá HR höldum t.d. mót mánaðarlega þar sem allir eru velkomnir hvort sem þeir koma úr HR, B.A.G., Guðmundi Arasyni, hnefaleikafélagi Garðabæjar eða hvaða nöfnum sem félagið kann að nefnast, svo lengi sem við höfum andstæðinga fyrir þá.