Ég er að spá í þetta 10 og 11 apríl. Brian Talarek, fyrrum heimsmeistari í kickboxi sem var með frábæra æfingu hérna ekki alls fyrir löngu og Mike Pyle sem er pro fighter og sérfræðingur í BJJ hafa áhuga á að koma hingað beint frá Rúuslandi þar sem Mike berst við Andrei Semenov í mixfight (www.mixfight.ru).

Það yrðu æfingar tvisvar á dag, fyrri daginn BJJ með Mike Pyle (Mike er alger snillingur í BJJ) og seinni daginn thaibox með Brian, æfingar 7 á morgnanna og svo aftur á kvöldinn. Þetta myndi kosta svona 5.000 kall á mann til að standa undir kostnaði.

Ég vill fá feedback frá ykkur hvort að þið hefður áhuga, mynduð mæta og BORGA.

Svariði sem fyrst svo ég geti séð hvort að það er grundvöllur fyrir þessu.