PesiH, ertu búinn að sjá lengdu útgáfuna af TTT? Þar er bætt inn atriði um Boromir, Faramir og föður þeirra, Denethor og samband þeirra. Þar finnst mér koma fram þessi bakgrunnur sem þér finnst vanta. Þó það hafi ekki verið sagt í þriðju myndinni, þá sáust samt (fyrir þá sem hafa lesið bækurnar) áhrifin sem Palantírinn hafði á Denethor, þegar hann sagði við Gandalf eitthvað á þessa leið: “For all your subtlety you have not wisdom, I have seen more than you know, with one hand you would use...