Ó Guð vors lands, ó lands vors Guð Ó Guð vors lands, ó lands vors Guð við lofum þitt heilaga, heilaga nafn. Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans þínir herskarar, tímanna safn. Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár, og þúsund ár dagur, ei meir, eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, sem tilbiður Guð sinn og deyr. Íslands þúsund ár, Íslands þúsund ár, eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, sem tilbiður Guð sinn og deyr. Ó Guð, ó Guð, vér föllum fram og fórnum þér brennandi, brennandi sál,...