Það má með góðri samvisku segja að enginn íslenskur stjórnmálaflokkur hafi neina afgerandi sérstöðu eða neitt sérstakt né nýtt fram að færa, a.m.k. ekki í því tæknivædda upplýsingaþjóðfélagi sem við lifum í í dag. Þjóðfélagið er það lítið, og hefur auk þess orðið minna á síðustu árum, að það kemur ekki upp nokkuð það mál sem varðar þjóðina að stjórnmálaflokkarnir taki ekki afstöðu til þess og fjölmiðlar sjá til þess með fyrirspurnum sínum og umfjöllunum að flokkarnir verða helst að hafa...