Glæsilegt, alveg frábært, endalaus hamingja.
Fyrst að mAlkAv er hættur, þá neyðumst við hin til þess að blanda okkur inní umræðuna…
Ég hata að þurfa að rökræða við þjóðernissinna.
Ég hata að þurfa að blanda mér inní umræðu um hvort hvítir séu gáfaðari heldur en svertingjar.
Mér finnst það ekki gáfulegt að halda því fram.
Mér finnst heldur ekki gáfulegt að halda því fram, að hörundslitur skipti máli við menntun fólks, eða hvort það sé atorkusamara útaf því að það sé hvítt (bleikljósbrúnn litur eða eitthvað álíka, réttarasagt).


—-
“wbdaz: Þegar stúlkubarn er orðið 3 ára má hafa mök við það en ekki fyrr og ætli það sé ekki fyrir að þakka einstakri biðlund gyðinga að leyfa stúlkunni að ná 3 ára aldri.“

Hvað… Ertu enn að neita staðreyndunum? Það er þegar búið að segja yður að: “Sjáum til, þetta með tilvitnunina í biblíuna sem segir að gyðingar séu barnaníðingar. Þýðingin á henni er einhvernvegin svona “Við þriggja ára aldur er hægt að hafa mök við stúlkubarn” Sem sagt, áður en að hún verður 3 ára er EKKI hægt að hafa mök við hana og þess vegna þarf ekki að passa hana, en eftir að stúlkan nær 3 ára aldri þarf að passa hana frá níðingum. Þetta ER rétt þýðing, reyndu ekki að neita því.” -wbdaz

Auk þess er þetta ekki rétt ástæða til að hata gyðinga. Ef þetta er rétt hjá þér, þá leyfi ég mér að efast stórlega um að þetta sé stundað nú til dags. Því getur þú hætt að nota þetta úrelta rugl til að sverta þennan trúarflokk.

—-
”Það að svartir eigi einhvern rétt á að hata hvíta finnst mér ekki rétt enda ættu þá allir hvítir rétta á að hata gyðinga þar sem fyrstu þrælarnir voru hvítir og þrælahaldaranir gyðingar. Þetta er bara ekki rétt.”

Syndir feðrana koma niður á börnunum, ekki satt Kanslari. En, ég er sammála því að við ættum að setja þetta aftur fyrir okkur og einbeita okkur að því að laga þetta.
Koma Afríkuríkjunum í gott horf, svo að það verði ábótasamt fyrir okkur vesturlandabúa, og allan íbúa Jarðar.

Þú ert með áróður gegn gyðingum enn og aftur. Hvað gerði þig svona hatramman í garð þeirra? Mein Kampf? (eða hvað sem fjandans bókin heitir.) Nei ég hef ekki lesið hana, en það að vita að hún er skrifuð af “Dolla” einsog þú kallar mannfjandann. Hann kom af stað heimstyrjöld númer 2. Hann jafnvel studdi óbeint að því að Hirósíma og Nagazagí voru njúkuð… En, það hafði getað gerst síðar…

—-
Ylfa: Þjóðernissinnar eru ekkert mikið fyrir boð og bönn nema þau séu algjörlega nauðsynleg og vilja því ekki banna eitthvað sem er með öllu skaðlaust, þvert á móti.

Til Ylfu frá Cosmo:
Þú hlítur að vera að grínast. Hahaha. Þú náðir mér um stund, en ég sá í gegnum þetta. Góður brandari, þakkir fyrir hann.
Hláturinn lengir lífið.

—-
Gourry: Ég er ekki latur og mér dettur ekki í hug að afsaka hvíta þrælahaldara enda myndi ég aldrei hneppa blökkumenn í þrældóm ef ég myndi ráða einhverju um það því allir eru jafnir og engir öðrum æðri.

Duglegur drengur. Hárrétt orðað og átt hrós skilið fyrir þennan útúrsnúning. Þú ert svo innilega ekki samkvæmur sjálfum þér þarna.
“því allir eru jafnir og engir öðrum æðri.”

—-
Þótt að Evrópa sé mjög framþróuð heimsálfa þá á það ekkert að gefa hverjum sem er rétt á að búa hér frekar en öðrum heimsálfum.

Hversvegna ekki? Má menntað fólk frá Afríku, Asíu ekki koma inní landið? Erum við ekki öll jöfn? Við erum (verðum) að reyna að byggja upp þekkingar iðnað hérna, en það gengur illa, vegna þess að Davíð er að missa tökin á efnahagslífinu, osfrv. Hann verður að toga í fleiri strengi til að rétta skipið við.

—-
Ég þarf ekkert að upphefja sjálfan mig enda hef ég engann áhuga á því þar sem ég hef ágæta sjálfsvirðingu.

Gott. Vegna þess að það eru fáir sem bera virðingu fyrir skoðunum þínum.
Þjóðernishyggja… (heheh, þvílíkt bull.)

—-
”Stöðluð mynd þín af þjóðernissinnum og um það að þeir séu latir, nenni engu og séu heimskir í alla staði á sér ekki nokkur rök enda veit ég ekki til þess að þjóðernissinnar séu nokkuð verri en annað fólk og hef ég kynnst mörgum gáfuðum þjóðernissinnum í gegnum tíðina en enginn þessara manna er í FÍÞ því að flestir alvöru þjóðernissinnar hafa lítið álit á því félagi.”

Ah, þú sýnir að þú hefur vit í kollinum eftir allt. En hugmyndir þínar um þjóðernishyggjur ganga langt frá upphaflegu hugmynd þjóðernishyggjunnar. Og þú ert ekki samkvæmur sjálfum þér. Það sem þú boðar, er ekki þjóðernishyggja.

—-
”Það að hafa svæði afmörkuð er alls ekki slæmt og ég skil ekki afhverju hvítir ættu að ráðast inn í Afríku enda vildi ég mun frekar hjálpa Afríkubúum að koma undir sig fótunum frekar en að vinna á móti þeim.”

Það er varla hægt, þar sem Afríkuríkin eru að drukkna í skuldum, og get ekki borgað þær upp vegna vaxtana sem á þeim hvíla. Þeir borga gífurlegar fjárhæðir, en það er bara afborgunin af vöxtunum.

—-
“Að leyfa hvíta kynþættinum að blandast við aðra kynþætti er afturþróun og þá sérstaklega ekki við 3 heims ríki því að hvernig getur það verið framþróun.”

Svo, segjum að ég myndi fara í eitthvað þriðja heims ríki, og myndi finna mér laglega svarta konum, sem væri laus við alla sjúkdóma osfrv. Segjum að þetta sé bara venjuleg almúga kona, og ég myndi koma með hana til íslands. Ég myndi eignast með henni börn. Ég myndi kenna börnunum Íslensku, og koma þeim til náms. Ef uppeldið hefur tekist vel, þá myndi ég ætla börnunum mínu framhaldsnám. Einungis eitt myndi standa í veg fyrir því… Þeirra vilji og

—-
“Japan er þjóðernissinnaðasta samfélag í heimi og mjög “einslitt” en það er einmitt tæknivæddasta samfélag í heiminum ásamt því að eiga greindasta fólkið sem ég sé ekki neina aðra ástæðu fyrir en hreinleika kynstofnsins.”

Hefur þú séð fátækrahverfin þarna? Ég held ekki. Japanar eru mjög margir. Miðað við mannfjöldann og þjóðfélagskerfi þeirra, þá er það alveg rökrétt að þeir séu mjög þróuð þjóð, og margir einstaklingar menntaðir þar. (ekki þjóðflokkur)

—-
Ég á engin börn enda bara 18 ára en ég er að hugsa um þetta til verndar okkur og komandi kynslóðum.

Lærir svo lengi sem lifir, segir einhverstaðar. Vertu nú góður drengur og láttu okkur í friði með skoðanir þínar.
Þroskastu.
Ef við höldum rétt á spöðunum, þá verður þetta frábært þekkingarþjóðfélag eftir nokkur ár, og mannlífið verður gífurlega fjölbreitt.

—-
”Ég hef engan áhuga á að afmarka þann hluta alþjóðavæðingar sem fellst í hlutum enda væri það afturþróun.”

Sammála þessum orðum.

—-
”JediMLD: Þú ættir að einbeita þér að einhverju öðru en að neita sönnuðum staðreyndum. “

JediMLD kom með eftirfarandi staðreynd: Gyðingar eru trúarflokkur, ekki kynþáttur.
Svartir eru alveg jafn gáfaðir og hvítir. Við erum öll með jafnann hæfileika til að læra, bara með mismunandi mikla menntun að baki.

—-
”Shamaroth: Í dag þá fara Evrópsk lönd ekki illa með Afríku enda veit ég ekki betur en að við hjálpum þeim stöðugt(sem er samt hið besta mál).”

Já, og nei.
Við erum ekki að hjálpa þeim sem skildi. Ef að viljinn væri fyrir hendi, þá væru þessi ríki mun betur á veg komin. Jújú, það fer fram hjáparstarf þarna, en… Það er einfaldlega ekki nóg.
Það þarf tímabundið að fella niður skuldir og vexti af skuldum þessara ríkja. Þau hafa borgað þessar skuldir upp fyrir löngu, en geta ekki borgað höfuðstólinn vegna vaxta.
Útkoma : Vextirnir halda þeim niðri.

—-
”Það að hvítir menn hafi farið illa með Afríku er ég ekki hrifinn af en þetta er fortíð sem við verðum að komast yfir og byrja að vera sjálfstæð.”

“Við?” Ég minnist þess ekki að íslendingar hafi verið að fara þangað til að ná sér í þræla. Ertu að tala um hvíta fólkið kanski…eða Evrópu búa? Það er ekki þjóðernishyggja að halda þessu fram vinur, heldur hreinn rasismi. Þú ert að mismuna þeim eftir húðlit og mismuna þeim eftir því hvar þau eru staðsett hér á Jörð. Komdu nú útúr skápnum vinur, og segðu upphátt: “Ég er rasisti, og ætla að ganga í FÍÞ.”

Og annað…
Íslendingar eru sjálfstæð þjóð. (ekki þjóðflokkur)
Nú á dögum er bannað að mismuna fólki eftir húðlit. Þessvegna skalltu sleppa að halda því fram hér á huga. Það er lýðræði hér á þessum vef, að ég held. (Stundum er einsog það sé svona “þingbundin konungsstjórn” hérna, en um það má deila einsog allt annað.)


Og að lokum…
Veftjórinn ætti að banna þig fyrir rasista áróður, og fyrir að verja Hitler. Hann sem sönnun þess hvað mannsheilinn getur verið hræðilegt vopn. Megi nafn hans verða bölvað um alla framtíð! Stalín líka. Mússólíní líka. Og allir hinir líka sem hafa stuðlað að morðum og pintingum á þessari Jörð.


[Ç]
With the aid of sophisticated computer technology
and a bottle of Coke….