Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

radical
radical Notandi frá fornöld 48 ára karlmaður
588 stig

Re: Að stjórna liði

í Unreal fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Allt sem þú sagðir er rétt og mjög mikilvægt til að vinna. Það er gott að ákveða hvaða aðferð á að nota fyrirfram og það er líka mikilvægt að það sé einn maður í hverju liði sem getur breytt taktíkinni fyrirvaralaust með einni skipun. Sá aðili ætti að vera með góða reynslu og góða yfirsýn yfir leikinn í heild. Að covera lykilsvæðin er lykillinn að sigri og það eru þau svæði sem hafa poweruppin og/eða loka öllum inngönguleiðum til og frá óvinastöðinni. Bestu clönin í þessu leik spila vörnina...

Re: Hver á að ráða??

í Heimspeki fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Það er verið að nota ofbeldi til að neyða okkur til hlýðni í samfélaginu í dag. Og það er kúgun hvernig sem á það er litið. Tökum dæmi: Ég borga ekki eignarskatta af húsinu mínu sem ég keypti mér fyrir peninga sem ég vann mér fyrir. Ríkið tekur af mér húsið með _valdi_ og selur það ef ég borga ekki. Ef þetta er ekki að kúgun þá veit ég ekki hvað er. Skattar á fólk er sama og þjófnaður í mínum augum. Við teljum okkur lifa í siðmenntuðu þjóðfélagi í dag, ég tel svo ekki vera, því á meðan vald...

Re: Eiga allir rétt á sjúkrahjálp

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég hef verið að pæla mikið í þessari spurningu sem ég fékk um að ef ég veld öðrum skaða vegna slyss og ég hafi ekki efni á að borga það hvað eigi þá að gera. Það er ekki sanngjarnt að persónan sem ég olli skaða sitji sjálf upp með kostnaðinn og ég ætti að borga hann þótt ég geti það ekki. Ég veit ekki alveg hvað er sanngjarnt gagnvart þeirri manneskju en ég veit að það er ekki sanngjarnt að neyða aðra til að borga fyrir mín mistök hvort sem það er í gegnum skatta eða ekki. Ef fólk myndi...

Re: Einstein was wrong (á ensku)

í Vísindi fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Fyrirgefið, mér bara datt ekki í hug að senda linkinn með, geri það næst ef ég finn einhverjar svona pælingar. Heimsíða húmoristans þar sem þetta er að finna er: http://members.aol.com/LummoxJR/ Stumblaði bara á þetta, netið er alltaf að koma mér á óvart :) Ég er ekki endilega sammála þeim sem þetta skrifa upprunalega, en engu að síður skemmtileg pæling. friður potent

Re: Temporal and Interdimensional Travel Restrictions

í Vísindi fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Það er ekkert lélegt… það er lélegt að geta ekki svarað nema til að segja að það sé lélegt að afrita :) En hérna er linkurinn á heimsíðu aðilans sem gerði þetta: http://members.aol.com/LummoxJR/ þetta er gamalt efni, síðan einhverntíman fyrir aldamót, og þetta er einhver húmoristi sem hefur gaman að pæla í hlutum, veit ekki einu sinni hvernig ég fann þetta. friður potent

Re: Eiga allir rétt á sjúkrahjálp

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Eins og ég sagði í síðasta svari mínu þá er þessi réttur fólks á öryggi of dýr eins og þetta er í dag. Það að ég er skyldaður til í að borga í sameignar sjóð og svo er mér líka bannað að gera margt sem þessi sameignarsjóður á að dekka.. það er ekki réttlátt. Ég get ekki tryggt að ég mun aldrei nokkurn tíman valda öðrum skaða, það er bara ekki hægt að koma alveg í veg fyrir það. Hinsvegar er hægt að hafa sjóði sem dekka svona lagað. Til þess að geta keyrt þarf maður bíl, ekki satt. Þegar...

Re: Hver á að ráða??

í Heimspeki fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Fólk vill frelsi. Og í mörg þúsund ár hefur fólk verið að berjast fyrir því. Frelsi til að gera það sem það vill án þess að eiga það á hættu að verða drepið, pyntað eða sett í fangelsi. Stríð hafa verið háð og stundum kemur það fyrir að þeir sem voru að berjast fyrir frelsinu vinni. Þess vegna má og á ekki að byrja upp á nýtt að setja fólki skorður, hversu smávægilegar sem þær eru. Fólk á að virða annað fólk og skoðanir þeirra. Það er það sem má lesa úr orðum Herra Franklins. Fólk sem vill...

Re: Eiga allir rétt á sjúkrahjálp

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Til að svara spurningunni: Já, það eiga allir rétt á sjúkrahjálp í dag. En þessi réttur er að kosta meira en ég vill borga fyrir hann. Ríkið skyldar mig til að borga skatta. Og ríkið skyldar mig til að fara eftir einhverjum reglum sem hefta mitt val, svo að peningurinn sem ég borga í skatta nýtist sem best fyrir alla. Er það ásættanlegt samkomulag? Ekki frá mínum bæjardyrum séð. Af hverju má ég ekki sleppa því að borga skatta og sjá um mig sjálfur? Hvað er það sem er svona mikilvægt að mér...

Re: Frelsi vs. Öryggi

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Það á ekki að banna einhvað sem er óþægilegt fyrir einhverja, því þá væri nánast allt bannað. Er sammála þér að það er ekki “gaman” að skoða svona myndir en það á ekki að banna þær af því einhverjum finnst óþæginlegt að sjá þær, akkúrat á meðan morgunmaturinn er. Væri heimurinn betri staður ef fólk vissi ekki af þessum börnum eða jarðsprengjum? Eða væri það bara betra fyrir þig? friður potent

Re: Hver á að ráða??

í Heimspeki fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég er ekki að segja að samvinna líði undir lok þótt eintaklingar fái að taka sínar eigin ákvarðanir, langt frá því. Og ég er ekki að fullyrða að allir geti séð um sjálfan sig. En má fólkið setja öryggi sitt framar en frelsi annara? Er það siðferðislega rétt? “á endanum myndi einhver rísa upp, nota vald sitt til að kúga aðra, og þá værum við MIKLU verr stödd en nú. ” Á endanum? Eins og ég sé það þá er þetta svona í dag. Það er vald hérna (meirihlutinn) sem notar vald sitt og er að kúga mig...

Re: Frelsi vs. Öryggi

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég er ekki að velja fyrir aðra með því að reykja. Samfélagið ákvað að skylda alla til að borga í sjóð sem allir eiga svo að hafa aðgang að ef þeir veikjast og ég var ekki spurður að því hvort ég vildi vera með eða ekki, það var ekki mitt val heldur samfélagsins (sem vill svo ekki borga). Mér finnst að reykingafólk, og aðrir sem ekki reykja, eigi að tryggja sig sjálfir fyrir sínum veikindum og slysum. Það er margt fólki í samfélaginu í dag sem vill og getur hjálpað öðrum og gerir það...

Re: Hver á að ráða??

í Heimspeki fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Reyndar heitir greinin Frelsi vs Öryggi :)

Re: Hver á að ráða??

í Heimspeki fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég er ekki alveg sammála þessu. Ég er samt nokkuð viss um að öryggi fólks yrði ekki eins mikið og núna. En aftur á móti miklu fleiri tækifæri. Ég skrifaði aðra grein á Deigluna (margfalt styttri ;) sem heitir “Öryggi vs. Frelsi” :http://www.hugi.is/deiglan/greinar.php?grein_id=22980 Þar tók ég tildæmis nýju tóbaklslögin sem dæmi um forræðishyggjuna og bara að þetta hafi komist í gegn sýnir bara vanhæfni fólksins sem er á þingi skýrt og greinilega til að hugsa fyrir okkur. Ég er allavega á...

Re: Frelsi vs. Öryggi

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Þitt frelsi til að velja stoppar um leið og þú ferð að velja fyrir aðra. Að fara yfir á rauðu ertu ekki að nota þitt frelsi til að velja heldur ertu að stoppa aðra af. Common sense. Þetta með fólk sem byrjar að reykja. Nú reyki ég. Ég tek tillit til annara og reyki ekki í kringum fólk sem vill ekki að það sé reykt í kringum sig. Það er minnsta mál í heimi að biðja fólk um að drepa í og það er líka ekkert mál að spyrja fólk hvort því sé sama hvor maður reyki í kringum það. Og þetta með að...

Re: Óhemju mikill verðmunur á milli USA og Ísland?!

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ein af aðalástæðunum fyrir því hversu miklu munar á tölvuvörum á íslandi og í BNA, fyrir utan VSK, er einföld: Fleiri milliliðir Flest tölvufyrirtæki á íslandi panta sínar vörur frá innlendum heildsölum (frá hvorum öðrum og tölvudreifingu) sem síðan panta þetta annað hvort frá framleiðanda erlendis eða erlendum heildsölum.

Re: öðruvísi kerfi.. ekki fullmótuð hugmynd

í Tilveran fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Mér finnst hugmynd Octavo um stjörnugjöfina mjög góð. Og meira segja miklu betri en allt þetta stigakerfi samanlagt. Væri ekki málið að hafa kerfið byggt upp á þannig kerfi, þ.e. fólk gefur einkunn fyrir greinar/korka og/eða svör. Því hærri einkunn því fleiri stig. Þannig að það skiptir ekki máli hvað fólk gerir það getur ekki fengið stig nema aðrir eigi hlut að máli. Þeir sem skrifa sínar greinar best og koma efninu vel til skyla fá fleiri stjörnur og fleiri stig. Og stjörnugjöf greina...

Re: Trúleysi.

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Er þá ekki sjálfsagt að fólkið sem þarf kirkju til að stunda sína trú leggji sjálf fram fyrir kostnaðinum, hvort sem það er vinna, hlutir eða fjármagn? Ég er á þeirri skoðun að ekki þurfi kirkju til að stunda sína trú. Það er allt í lagi að virða þá skoðun mína. Ef hinsvegar einhverjir eru á þeirri skoðun að þeir verði að hafa kirkju til að stunda sína trú, þá finnst mér það sem ég bendi á að ofan alveg sjálfsagt. Mér finnst líka sjálfsagt að ekki sé gert ráð fyrir því fyrirfram að fólk...

Re: Frelsi vs. Öryggi

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Carmen “Of mikið frelsi verður höft í sjálfu sér. ” Gætiru útskýrt þetta aðeins betur, ég skil ekki alveg hvað þú meinar. Í þessari grein minni tók ég tóbakslögin sem dæmi, enda mjög gott dæmi. Það er margt annað sem fer líka yfir strikið að mínu mati þó það fari ekki alveg jafnlangt yfir það og þessi lög. Má þar nenfa lögin sem banna einstaklingum að stunda eða æfa hnefaleika hér á landi. MIklu frelsi fylgir mikil ábyrgð og það vantar mjög mikið að fólk taki ábyrgð á því sem það segir og...

Re: Hér kemur buna.

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Eru til einhverjar rannsóknir á fólki eldra en 19 ára. Eða fólki sem er búið að taka út fullan þroska áður en það byrjar að nota öll þessi efni? Og það segir sig líka sjálft að á meðan öll þessi efni eru sett undir sama hatt (enginn greinarmunur á þeim gerður hvað varðar styrkleika) þá er ekki ólíklegt að unglingar og börn geri sér ekki grein fyrir muninum og leiðist út í sterkari efni þegar þau eru öll seld af sama ólöglega aðilanum sem selur hvað sem er fyrir smá pening. Mörg þessara efna...

Re: Röng greining vandans

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Fyrir mitt leiti er ég alfarið á móti inngöngu í ESB. Við erum með nóg af reglum og lögum núna sem meika engan sense. Það er bara vitleysa að mínu mati að færa “stjórnina” úr okkar höndum og til einhverja annars sem setja reglur sem eiga ekkert skylt við aðstæður hér á landi. Fyrir utan það að það eru enn minni líkur á því að við getum haft einhvað að segja um þær reglur og þau lög sem okkur finnst ekki meika neitt sense nú þegar. Ef fólk er að horfa á myntbandalagið sem aðalástæðu þá má...

Re: Svona vil ég sjá Huga

í Hugi fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Vill nú ekki vera leiðinlegur en… Er ekki málið að sleppa þessum stigum bara alveg. Þá væri ekkert vesen. Hafa þetta bara alveg eins og í dag nema bara sleppa stigunum. Þá fer fólk kannski frekar að tala um hlutina af hugsjón frekar en “stiga-græðgi”. Ég skal játa það að fyrst þegar ég byrjaði á huga eltist ég við þessi stig, ég hélt að maður fengi einhvern geisladisk eða einhvað ef maður fengi 1000 stig. Núna svara ég ekki könnunum ef það er ekki svarmöguleiki sem passar minni skoðun þó svo...

Re: Guns dont kill people, I kill people...

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Það virðist vera. Foreldrar eru hættir að taka ábyrgð á börnum sínum, vilja að skólinn, tölvuleikir eða sjónvarpið geri það. Ef einhvað gerist er það vegna þess að það er svo mikið ofbeldi í sjónvarpinu, eða tölvuleikurinn sem var svo ofbeldisfullur eða skólinn kenndi ekki krakkanum hvernig hann á að haga sér. Foreldrar virðast ekki hafa tíma né áhuga á því að ala börnin sín upp, hvað þá að taka ábyrgð á uppeldinu, því miður. friður potent p.s. þótt ég alhæfi hérna þá er ég ekki að meina það...

Re: A-Lið og B-Lið samkvæmt kosningu

í Unreal fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Hvaða hvaða.. stress í mönnum? Allir að æfa sig í eftirfarandi Terra Face Mcswartzly Það er ekki kominn fastur dagur á leikinn ennþá, en það er verið að vinna í því. Íslenska liðið hefur enn ekki ákveðið hvaða borð verða valin, en það mun líklega koma í ljós í dag eða á morgunn. Er fólk til í að spila í kvöld? Eða annað kvöld? kv. potent

Re: Trúleysi.

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Það er gott að þú sért sátt við það sem þú trúir á. Ég er líka sáttur við það sem ég trúi á þó það sé ekki nákvæmlega það sama. Við viljum bæði nokkurn veginn það sama bara með smá áherlsumun, og þitt er ekki réttara en mitt eða öfugt. Ég trúi ekki á Guð núna, þó það geti vel verið að ég finni hann einhverntíman seinna. Þetta er hvernig ég hugsa þetta núna og það gæti alveg eins breyst. Ég er opinn fyrir flest öllu að ég held, svo framarlega sem ég fæ að taka mínar eigin ákvarðanir um málið....

Re: Brabra og sparnaðarráð

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Kæra Veira Það er rétt að ég á ekki börn og það er líka rétt hjá þér að það er ólöglegt að vera fullur á almannafæri. En þegar maður er inn á skemmtistað sem selur áfengi er maður ekki lengur á almannafæri. Og það kallast ekki að vera á almannafæri ef maður fer útaf staðnum drukkinn og fer heim til sína. Einhvern veginn verður drukkið fólk að komast heim til sín. Þegar maður fer út að skemmta sér og fær sér í glas þá þýðir það ekki endilega að maður verði ovurölvi, þótt sumir verða það....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok