Ég var að skoða hvað tölvuhlutir kosta úti í Bandaríkjunum, þar sem nánast allir panta þetta af netinu. Dæmi: Örgjörvi AMD Athlon 1.4 ghz $170 slétt úti (uþb 17000 kr). Hérna kostar hann 34400 hjá computer.is, 34900 hja tölvulistanum og tæknibæ. Það munar 17000 á þessu! Annað dæmi: IBM deskstar 60GXP 40 gig vinsæll harður diskur, hér kostar hann um 22000-23000, í usa geturu fengið hann rétt yfir 10000.

Hvað felst nákvæmlega í þessum mun? Ferðakostnaður, virðisaukaskattur, þjónusta…sem fer upp í 17000+ krónur? (Muna að verðið út er ekki bara framleiðslukostnaður, það er líka álagning þar) Mér finnst þetta bara hlæjilegt hvað það munar miklu. Munið það að fólkið sem pantar þessa hluti í USA fær þjónustu og ábyrgðartryggingu alveg eins og við hérna heima. Það borgar sig greinilega að búa í útlöndum!