Ég vil nú ekki hljóma eins og einhver gömul kona eða eitthvað en hvað er að verða um sum börnin hérna á Íslandi…

Ég var niðri í bæ um daginn og þá sé ég lítinn strák, kannski svona 8-9 ára á hjólabretti, reykjandi sígarettu og í svona T-shirt bol sem á stendur GUNS DONT KILL PEOPLE - I KILL PEOPLE, skrifað með þykkum rauðum stöfum sem litu út eins og blóð…

Persónulega fannst mér þetta frekar ósmekklegt og eiginlega bara sorglegt, er sumt fólk hætt að ala upp börnin sín eða hvað?