Eins og ég sagði í svari mínu við pank þá ætla ég mér alls ekki að hafa hundinn einn heima alla daga, en stundum er ekki hjá því komist og þá er ágætt að vita að þessi hundur þolir það allavega að vera einn heima í smá tíma. Þetta yrði ekki fyrsti hundurinn minn heldur, ég átti mjög erfiðan Border Collie hund sem þurfti nýlega að láta svæfa, og hann var mjög tímafrekur, fór í tvo langa göngutúra á dag og var eiginlega aldrei einn heima lengi… það lengsta var sex tímar held ég. ;) En takk...