4 Abyssiniukettlingar! Ég var að verða kisuamma í fyrsta sinn… Abyssiniulæðan mín var að gjóta í fyrsta sinn!

Hún vakti mig klukkan 6.30 með miklu mjálmi og auðvitað stökk ég fram úr til að hjálpa henni (fór reyndar að sofa um 4 :0)) Hún missti vatnið rúmlega 7 og svo fóru kettlingarnir að birtast. Hún vissi nú ekki alveg hvað var að gerast þegar sá fyrsti birtist þannig að ég hjálpaði litla greyjinu úr pokanum og svo tók hún alveg við og stóð sig eins og hetja.

Þetta eru 3 læður og 1 fress og öllum heilsast vel… Það er hægt að fygjast kettlingunum á heimsíðunni minni en ég ætla samt að leyfa þeim að dafna svolítið áður en ég byrja í myndatökuleik…

ég varð bara að deila þessu með ykkur og monta mig pínulítið!

kveðja Eplakona.