Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

potemkin
potemkin Notandi frá fornöld 60 stig

Snúður og Snælda (1 álit)

í Bækur fyrir 19 árum
Sælt veri fólkið, Ég er búinn að vera að glugga í bókmenntaflokkinn um Snúð og Snældu undanfarið. Er möguleiki að þýðandi bókanna hafi ruglað kynjahlutverkunum í bókunum, jafnvel viljandi? Snælda er svartur köttur sem tekur sér fyrir hendur karlmannleg verkefni svo sem að veiða á meðan hvíti (kvenlegi) kötturinn er að elda matinn. Hvað haldið þið um þessa kenningu? kv. P

filesystemobject i .NET (7 álit)

í Forritun fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Sæl veri fólkið, Ég hef nú hrökklast yfir í .NET forritun þar sem gamla góða VB 6.0 er illkeyranlegt á PocketPC. Ég þarf að afrita eina skrá frá A til B á handtölvu og með gamla VB hefði þetta verið um það bil 3 línur í kóða. Hins vegar hefur mér nú tekist að gera að skrifa 40 línu kóða í .NET sem “afritar” skrána yfir í tóma skrá á nýja staðnum. Sem sagt ekki mjög gagnlegt! Er til eitthvert “native” object sem gerir þetta þægilegt eða er þetta eitt af snilldarbrögðum M$ til að hindra...

Tollreglur og bókmenntir (10 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ágætu lesendur. Hér fer á eftir texti sem letraður er á skilti í flugstöð Leifs Eiríkssonar og hefur lengi valdið mér heilabrotum. Mun ég gjarnan þiggja aðstoð ykkar við að túlka það sem hér stendur. Þó mun ég sjálfur gera til þess lítilmótlega tilraun enda hef ég nokkrum sinnum starað á þetta snilldarverk í leit að merkingu. Textinn er sem hér segir: ?Tollreglur Ferðamenn athugið: Aðeins þeir sem hafa tollskyldan farangur meðferðis eða farangur, sem háður er innflutningstakmörkunum eða...

Linux og rekstarhæfni (30 álit)

í Linux fyrir 21 árum
Sælir, Mikið hefur verið rætt um stöðuleika Linux boxa í rekstri og margt er til í því að stýrikerfið sé stöðugt. Hins vegar hefur mér reynst örðugt að reka svona vélar í umhverfi þar sem rafmagnsfæðingin er ekki rock solid. Sem dæmi um slíkt umhverfi má nefna t.d. venjuleg heimili þar sem eldavél og hraðsuðuketill slá út öllu húsinu o.s.frv. Skráakerfið ext2 hefur haft þann galla að eftir rafmagnsrof þar gjarnan að fsck-a diskinn áður en tölvan fæst til að hrökkva í gang. Með öðrum orðum,...

ext3, rafmagnsleysi og kernel panic (3 álit)

í Linux fyrir 21 árum, 1 mánuði
Sælt veri fólkið, RH 7.3 boxið mitt kemur upp eftir rafmagnsrof með kernel panic. Tölvan ræsir Grub og fer í gegnum þetta venjulega en stoppar svo á: Grubby: No action (defined? er að skrifa þetta eftir minni) Kernel panic, bla bla bla Hvernig er rétt að bjarga sér úr þessu? Er einhver “björgunarhamur” úr Grub sem getur lagað diskstrúktúrinn eða þarf að ræsa á einhverju minidistroi sem býður upp á ext3 check? Öll hjálp er vel þegin. P.

Rafmagnsleysi (2 álit)

í Linux fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Sælir Hugarar, Ég á í vandræðum með Linux vélar (RH 7.0). Þegar rafmagnið fer af þá fer diskurinn í skrall og það er ekki hægt að endurræsa fyrr en búið er að fsck-a diskinn. Er hægt að gera eitthvað reglubundið á vélinni til að fyrirbyggja að þetta gerist? Er þetta etv. stillingaratriði? P

win2000 uppsetning (4 álit)

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hæ, Ég er búinn að slást við að koma windows 2000 upp á nýjum diski núna í hálfan sólarhring! Ég stilli biosinn á bootorder CDROM - C - A. (tölvan finnur diskinn og allt í lagi með það). Install forritið ræsist upp af diskinum og ég vel að formata diskinn og er með eina partition. Innstall forritið hleður inn skrám á diskinn og fer svo fram á endurræsingu. Eftir endurræsingu gerist ekki neitt! Tölvan finnur ekki hið nýuppsetta stýrikerfi. Hins vegar býður hún mér upp á annan “hring” með því...

Tíska í mótorhjólum? (10 álit)

í Mótorhjól fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þetta á etv. illa heima sem grein og fyrst og fremst skrifað til þess að fá viðbrögð frá notendum. Er tíska í mótorhjólum á Íslandi? Ég man eftir því fyrir c.a. 15 árum síðan þá var mjög algengt að fólk væri á svokölluðum “kappaksturshjólum” með hestaflatölu á við lítið vatnsaflsorkuver og hönnuð í vindgöngum. Því meira plast þeim mun betra. Fólk notaði lokaða hjálma með dekktu gleri og klæddist níðþröngu leðri sem oftar en ekki var litað í öllum regnbogans litum. (þetta lið var ekki ósvipað...

Ritvörn og DVD (9 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Eins og ég lýsi í nýlegri grein þá er ég að spá í að losa mig við gömlu græjurnar og kaupa gott heimabíókerfi sem jafnframt er hægt að nota til tónlistarflutning. Ég keypti nýlega disk í Skífunni sem er ritvarinn og ég get því ekki notið þess að hlusta á hann í tölvunni (sem ég sit gjarnan framan við). Því fór ég að hugsa: Er hægt að spila svona Skífu-aumingja-drasl diska í DVD spilara? Er þetta heimabíóconcept mitt að falla um sjálft sig vegna meðvitaðrar gæðarýrnunar á þessum...

Val á heimabíókerfi (18 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Sælt veri fólkið. Ég hef verið að skoða heimabíókerfi sem hægt yrði að nota bæði til þess að horfa á bíó og líka til þess að njóta tónlistar. Ýmsir hafa verið að auglýsa svona kerfi grimmt fyrir jólin og þar á meðal Hljómsýn sem auglýsa “Alvöru heimabíókerfi”. Ég kíkti á þennan Hljómsýnardíl sem fólst í eftirfarandi: Marantz magnari Marantz spilari Heimabíóhátalarasett. og allur pakkinn á 150 þús. Þegar ég sagðist myndu hafa áhuga á því að nota þetta líka til að hlusta á tónlist þá runnu...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok