Ég verð nú bara að setja stórt spurningarmerki við fílupokan hana Jóhönnu Sigurðar., og fílu hennar og umsögn að íhuga að segja sig úr þjóðkirkjunni vegna helv…. kynferðis-rugludalla sem fremja sálarmorð.

En samkynhnegðir hafa barist fyrir að kirkjan gæfi þá saman og blessaði, og Jóhanna fyrr búin að ganga upp kirkju gólfið, þá ætlar hún bara að segja sig úr kirkjunni. Ekki er trúin og tryggðin mikil. Ekki segji ég mig úr stjórnmálaflokk ef einhverjir nokkrir einstaklinga skíta upp á bak. Ekki dæmi ég allan flokkinn.

Ef Jóhanna vildi vera liðsmaður Jesús ætti hún þá að drullast til að sanna að hún ætti skilið að vera valin í liðið, og væla ekki á hliðarlínunni stanslaust þegar eitthvað bjátar á í framlínunni. Hún vill bara vera sett á sölulista strax. Ég væri fljótur að selja svona vandræða pésa í mínu liði, enda eru þeir til vandræða sama hvaða liði þeir spila fyrir, þó það sé í utandeildinni.

Svo er allt vitlaust ef Færeyingur vill ekki hitta Jóhönnu vegna lífsskoðanna hans. Hvað á bara að virða skoðanir Jóhönnu en ekki hins? Hvaða rugl er þetta, svo er greyið Færeyingurinn núna fórnarlamb eineltis. Núna er það bara ekki móðins að vera á móti fyrirfram gefnum skoðunum almennings, það er bannað.