Þarna er ég sammála þér Putnarass. Sjálfur hef ég flogið með umræddu félagi og líkaði bara nokkuð vel, ég var að fá það sem ég var að kaupa, hvorki meira né minna. Mikkjel, þú ættir ekki að vera að svekkja þig á þessu, ef þú hefðir beðið fólkið að taka fætur af sætisbaki eða rétta aðeins úr sætinu þá hefði það eflaust orðið við bón þinni. Þú kaupir svo bara bók fyrir næsta flug ef þú nærð ekki fegrunarblundinum í vélum Iceland Express…