Ég er ung stelpa og mig langar til að hefja flugnám og verða flugstjóri en ég er samt ekki alveg viss um það.
Það er nefnilega það að það hvílir á manni svo mikil ábyrgð að fljúga flugvél eða þotu fulla af farþegum. Þetta er samt ekki ástæðan fyrir því að ég vil ekki fara í flugnám. Flugnám er líka dáltíð dýrt, allavega það sem ég hef kynnt mér. Síðan er það önnur ástæða, að mér finnst þetta vera meira kallastarf en kvenna starf allavega það sem ég hef heyrt um þá eru flugstjórar oftast karlmenn samt hef ég heyrt um örfáar flugkonur.
Mér finnst flugkonur vera í fjarska frá komandi framtíð kannski þarf eitthverja rótækar breytingar til að breyta þessaru atvinnugrein til að Konur öðlist meira tækifæri og vilja til að hefja þetta nám.
Ætti ég að þora að taka af skarið og hefja þetta nám allavega ég hef brennandi áhuga á því en það er samt eitthvað sem dregur mig til baka og ég er ekki viss.
En þetta ræðst af hvernig því hvernig mál þróast í framtíðinni hjá mér.