Hæ aftur:) Já, auðvitað er gaman að upplifa öðruvísi jól, en ég held að maður þurfi einhvern til að halda þau með. Ef þessi strákur (eða einhver annar af Íslendingunum hérna) hefði verið einn, hefði þetta verið minna mál. Ég veit alveg að ég á eftir að eyða einhverjum jólum hérna úti og hlakka bara til. En svona fyrsta árið í útlöndum, þá langar mig bara heim… En takk allir fyrir skemmtilegar sögur af ykkur:) Vona að allir hafi það bara gott, ég ætla að halda áfram að pakka;) Jólakveðja Peewee