Alveg er ég hrikalega ósammála þér! (Allavega í mínu tilfelli). Ég var með strák sem fór með mig eins og skítinn undir skónum sínum, eftir svoleiðis meðhöndlun í viku, tók ég saman draslið hans, sagði honum að skila lyklinum og vinsamlegast drulla sér út og láta mig ekki sjá sig framar! En þegar ég fer að hugsa betur þá eru margar stelpur svona, elska að láta fara illa með sig. Ég skil ekki svoleiðis. Getur það verið til að fá vorkunn frá vinahópnum eða?? Ég bara hef ekki hugmynd! Allavega...