Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Heim um jólin! (21 álit)

í Hátíðir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Sælir jólahugarar! Ég bý erlendis og langar náttúrlega rosalega mikið heim um jólin. Við erum sex Íslendingar sem búum hérna og allir nema ég og annar strákur vorum búnir að panta sér ferð heim um jólin. Námslánin mín eru ekki að leyfa mér að ferðast fyrir fimmtíu þúsund svo ég var búin að sætta mig við að halda jólin með þessum strák á stúdentagörðunum hérna. Hugsaði bara með mér að þetta yrði öðruvísi. Foreldrar mínir virtust ekki hafa tök á að hjálpa mér að koma heim svo þetta var eina...

Ein ég bý og elda.... ekki neitt! (9 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Sælir Hugarar! Mér datt enginn annar staður en “matargerð” til þess að setja þetta á. Þannig er mál með vexti að ég bý ein og þegar maður býr einn, nennir maður ekki alltaf að elda. (Ég er örugglega ábyrg fyrir helmingi af veltu KEA skyrs) Það kemur þó stundum fyrir að mig langar í eitthvað gott að borða og þá skunda ég út í búð. En þar bíður mín stórt vandamál. Matnum er pakkað í einhverjar pakkningar og þær eru svo svakalega stórar. Ég vinn vaktavinnu og er oftast búin þegar búið er að...

Tískan gengur í hringi. (20 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Í gærkvöldi var ég að horfa á Gettu betur frá því ´89 held ég og hef kíkt aðeins á þættina sem voru á undan. Þó svo að efnið sé ekki skemmtilegt í þessum þáttum, hef ég bókstaflega grenjað úr hlátri. Fötin eru ógeðsleg! Fyrir það fyrsta voru “kúkabuxur” eða pokabuxur ofsalega vinsælar ásamt fullt af plastskartgripum og svitaböndum. Skærir litir og allt úr joggingefnum voru það heitasta á tímabili, krumpugallarnir og apaskinnsgallarnir voru virkilega “inn” og síðan komu snjóþvegnu gallafötin....

Er þörf á vetrardekkjum? (18 álit)

í Bílar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hæ allir! Ég var að vona að einhver geti svarað mér. Þannig er að ég er á 4WD bíl og hann var á nöglum síðasta vetur en í vor plokkaði ég naglana úr dekkjunum. Þau eru vel mynstruð og í ágætu standi. Nú er ég búin að búa á Akureyri síðastliðna 3 vetur og þar er náttúrlega þörf á keðjum!! En ég er hinsvegar að búa fyrsta veturinn minn hér í borginni. Og þá kemur spurningin:o) Er vetrarfærðin hér þannig að nauðsynlegt er að vera á vetrardekkjum eða er í lagi að vera á “heilsársdekkjum” og 4WD?...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok