Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

1. apríll (myndin) (2 álit)

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Halló! Er einhver þarna búinn að sjá myndina 1. apríll? Ef svo er, væri þá ekki góð hugmynd að segja okkur sem ekki höfum séð hana eitthvað um hana. Er eitthvað varið í þetta eða er þetta algjör vitleysa? Kv. Peewee

Ljóð til foreldranna?? (7 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Halló allir! Veit einhver hvar ég get fundið ljóð sem ort er handa foreldrum manns? Ég er búin að leita og leita á netinu en finn ekki neitt :( Ég er að tala um eitthvað svona sætt ljóð sem segir ótrúlega margt… Ef einhver veit hvar ég get fundið þetta, má sá hinn sami endilega upplýsa mig. takk takk Kv. Peewee

HM á netinu í kvöld? (5 álit)

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Veit einhver (þarna heima á Íslandi) hvort Rúv ætli EKKI að útvarpa lýsingunni á leik Íslands og Spánar í gegnum netið? Á síðunni þeirra, stendur bara að það sé eitthvað Útvarp Samfés og svo tónleikar með Chemical brothers á meðan leikurinn er… Það verður allavega mikil sorg í mörgum löndum ef þeir útvarpa þessu ekki. Hefur einhver heyrt eitthvað um þetta? Ef svo er, plís viljiði svara því hér Takk takk Peewee

Skil ekki! (4 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég var að skoða mbl.is og þar stendur á forsíðunni: Sögulegur sigur FB á Verzló í undanúrslitum Morfís. Ég skil ekki! Af hverju er þetta sögulegt? Það er ekki einu sinni sagt í fréttinni hvað er sögulegt við þetta! Ekki skilja þetta þannig að mér sé eitthvað illa við FB eða eitthvað svoleiðis. Reyndar finnst mér þetta soldið fyndið því Verzlingar voru mjööög sigurvissir. En ég skil ekki sögulega hlutann við þetta! Getur einhver útskýrt?

Hávaxnir/lágvaxnir (5 álit)

í Heilsa fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hæ! Ég er mikið búin að hugsa um þetta og vissi ekkert hvert ég átti að senda þetta svo ég prófa bara hér :o) Nú er ég frekar hávaxin (188cm) og á vinkonu sem er 180cm. Í hvert einasta skipti sem við förum á djammið eða í verslunarleiðangur eða bara hvar sem við erum þar sem það er mikið af fólki, þá finnst okkur (og þá sérstaklega mér) við gnæva yfir alla! Það er reyndar ekkert svo skrýtið að ég sjái yfir allar stelpurnar en mér finnst strákarnir hafa farið minnkandi! Tökum sem dæmi: Við...

Hvar??? (2 álit)

í Gamanþættir fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ok! Ég er nýbúin að átta mig á hvað Friends eru æðislegir (já, ég veit hvað ég er sein að því, gaf þeim bara aldrei séns af því að fyrsti þátturinn sem ég sá var frekar leiðinlegur) og nú langar mig að eignast þetta allt saman! Ég á ekki DVD spilara þannig að gamla VHS verður víst bara að duga! Er þetta ekki ógeðslega dýrt dæmi? Er kannski gáfulegra að kaupa sér DVD spilara og safna þessu svo í rólegheitunum? Eru ekki allar seríurnar til á DVD? Hvar gæti maður keypt þessar seríur? Nóg af...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok