Já, það er mismunandi hvernig fólk upplifir lífið og tilveruna þessa dagana. Myndmálið sem þú dregur upp hérna er frábært og manni líður eins og maður sé kominn inn í veröld þessara 4 persóna. Mesta samkennd fann ég samt með fyrstu persónunni. Hversu oft hefur maður ekki setið við gluggann, eirðarlaus, og horft á umferðina, kuldann og myrkrið á þessum árstíma? Glúbbi… þú semur helvíti góð ljóð en einhvern veginn tekst þér í sífellu að koma manni á óvart, aftur og aftur.