í svörtu jakkafötunum
og hvítu skyrtunni
stóð ég með vaxið
skyndimeikið
eye-linerinn
augnskuggann
og varalitinn
inni á karlaklósettinu.

horfði á spegilinn
horfði á sjálfan mig
horfði á hlutina
og lagði frá mér Martiniflöskuna

hugsandi:

“varð James Bond aldrei svona fullur?”
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.