Í válegum fréttum
var þetta helst
að viljastyrkur brjálaðra baptista
í bandarískri kirkju
sendi nokkra svía til viðbótar
beinustu leið á business-class
í brennandi helvíti.


Ég samdi þetta eftir að hafa lesið frétt um “kristið” fólk í Kansas sem hafði fagnað dauða þeirra svía sem létu lífið í flóðunum á annan í jólum. Þetta svo ægilega guðrækna fólk harmaði það bara að fleiri svíar hafi ekki drepist, helst svo þúsundum skipti. Ástæða þessa haturs var sú trú baptistanna að hver einn og einasti þessara svía væri barnaperri. Öfgarnar eru sko líka innan kristinnar kirkju eins og í Islam.
—–