skýjafarið




skuggar og glitský
skyggja á ávalar
hlíðar

skýjafingur leita uppi
logandi bletti

leita og iða

titra og teygja
toga í rætur

móður jarðar
sem stynur

og biður um meira