Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Felur sig í myrkrinnu

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Mjög góð ádeila en please vandaðu stafsetninguna betur!

Re: Fyrir frið

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Er þetta ljóð eitthvað tengt nýjasta verkinu þínu, “Píslarvottur”? Annars mjög flott.

Re: Píslarvætturinn

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Eins og þú segir vanalega: “Tær snilld!” Ég er virkilega sammála þessu, píslarvættir hafa oft á tíðum dáið fyrir heimskulegan málstað sem þeir halda sjálfir að sé göfugur og merkur. Samdi einu sinni ljóð um svipað efni, það heitir “Martýr” og kom hingað á huga ca. fyrir tveimur árum (haustið 2001)

Re: Kom, sá... og hætti við

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Hehehe… skemmtileg pæling sett í sniðugan búning :)

Re: Atómskáldaklúbburinn

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Mjög sniðugt og flott :) Skemmtilegt myndmál like always!

Re: Afskiptalaust örverpi örlagastjórnenda

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Þakka ykkur öllum fyrir hrósin :) Alltaf gott að hafa smá húmor fyrir sjálfum sér, lífinu og guðunum! kv. Mjási mjúki

Re: Hvað nú….?

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Flott og dimmt, vona líka að þetta sé ekki byggt á eigin reynslu? kv. Mjási

Re: Sveitin

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Úff… passa stafsetninguna! Vil ekki vera með bögg, en þetta er eiginlega alltof mikið. Alltaf að prófarkalesa áður en þú sendir inn því þetta hefði getað orðið fínasta ljóð.

Re: Misheppnaður

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mjög vel samið þunglyndisljóð! Langbesta ljóðið sem ég hef séð frá þér :) Þú ert greinilega að taka miklum framförum. kv. Kisi

Re: i fought the love (and i won)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
ehemm… meinti sko “pönksveit frá áttunda eða níunda áratugnum” - ekki “nýbylgjusveit” :þ

Re: i fought the love (and i won)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Virkilega flott! Ég hafði fengið nákvæmlega sömu hugmynd um daginn en mér tókst ekki að vinna nægilega vel úr henni. Skemmtilegt nafn á ljóðinu líka, með hvaða hljómsveit var aftur lagið “I fought the LAW (and I won)”? Var það ekki Clash eða Sex Pistols? Allavega einhver bresk nýbylgjusveit að mig minnir… kv. Kattarófétið

Re: Veikburða vonir við uppgjöf

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
*mjááá!* Þakka hrósið og respectið ;) R-E-S-P-E-C-T-T-O-Y-O-U-T-O-O!!! kv. Kattarófétið

Re: Flótti

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Jæja… fjallar þetta um varúlfa eða er þetta tákn fyrir eitthvað annað? Manneskju sem þér er illa við kannski? Annars nokkuð nett ljóð.

Re: Mamman, myndlistarkonan

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Awwwww… svo sætt :) Skemmtileg ástarjátning með helling af myndmáli.

Re: Án titils

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hehehe… ég held að myndlíkingafyllerí sé akkúrat rétta orðið til að lýsa þessu ljóði! ;) Annars er þetta ótrúlega flott mynd sem þú dregur upp af himinhvolfinu! Yndislegt ljóð. kv. Danni

Re: Veikburða vonir við uppgjöf

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þakka þér fyrir :) Mér fannst þetta vera full svart ljóð og þunglyndislegt þegar ég samdi það og óttaðist frekar mikil viðbrögð frá öllum en þetta er samt feik ljóð (þannig séð). Annars, þá þýðir “róspekt” eins konar friður eða ró sem hvílir yfir manni… í þessu samhengi í ljóðinu er það “doði”.

Re: Muse til Íslands

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég!

Re: Ljod.is ljóðabókin! ATH!

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er bara aldrei að vita :) Þetta er reyndar aðeins meira en að bara segja það… kannski hún komi bara út eftir jól - en þá missir maður reyndar af bókaflóðinu… kemur allt í ljós.

Re: Úrtdráttur úr viðtali við mig þegar ég verð frægur

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Snilldarljóð! Skemmtilega samið og ég er alveg sammála þessum myndlíkingum - maður getur samið um hvað sem er ef maður er í skapi til þess :) Annars… til hamingju með ljóðið í bókinni!

Re: Ljod.is ljóðabókin! ATH!

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Já… það er gaman af þessu :) Loksins hefur maður skráð nafn sitt á spjöld, jaa… eða blaðsíður sögunnar og fengið eitthvað birt eftir sig :) Það er spennandi að sjá hvernig þetta mun koma út!

Re: Nokkur ljóð eftir mig

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ekki misskilja samt. Þetta eru ágætis byrjunarljóð hjá þér - vildi ekki vera alltof harður við þig ;) Nú er bara spurning um að æfa sig aðeins meir, prófa sig áfram á hinum og þessum pælingum og senda það svo inn! Það er alltaf fínt þegar yngra fólk sendir ljóð hingað inn… þetta kemur allt saman :)

Re: Ringlaður líkami við fullnægingarstig (lagatexti)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Doldið mikið til í þessu hjá þér! Þú mættir nú endilega koma með þína upplifun af haustinu og binda það saman í eitt stykki ljóð? ;) Hvernig væri það nú?

Re: Mig langaði svo

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Er strax farinn að hlakka til að lesa framhaldið af ljóðinu ;) (efast þó um að það verði jafn langt og þetta… hohohohohohohoho… ef þið skiljið hvað ég meina? :þ)

Re: Ringlaður líkami við fullnægingarstig (lagatexti)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það þýðir ekkert að verða vandræðaleg Lynx! :þ Haustið er nottla greddutími, það er alveg rétt. Sumarið, vorið og veturinn eru það reyndar líka en það er eitthvað sjarmerandi við haustið og þennan kulda, að þurfa að ylja sér við arineld, drekka kakó og hjúfra sig undir hlýrri ábreiðu meðan haustvindarnir leika kaldir við þunna gluggana… *uhmmmm…!* ;) En fannst þér þetta menningarlegt?!

Re: Ringlaður líkami við fullnægingarstig (lagatexti)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þakka ykkur öllum fyrir álitin ;) Ég veit ekki alveg hvað veldur þessari frumleikabylgju hérna en ég er alveg sammála þér - hellingur af skemmtilegu efni að koma inn! :) Kannski er það haustið með öllum sínum breytileika sem veldur einhverjum straumhvörfum í kollinum á fólki, kannski er það eitthvað annað? Hver veit… Allavega veit ég fyrir mitt leyti að ég hef doldið mikið af hugmyndum á lager sem ég gæti hugsað mér að nota í næstu ljóðum :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok