Ég horfi á þig,
þú ert autt blað
en þó svo undurfagurt.

Þú færð mig
til að vilja verða
besti málari heims.

Mig langar að teikna
á þig útlínur hamingju
með ást minni.

Og hjálpa þér svo
að skreyta hana
litum gleðinnar.