varir okkar föðmuðust fast
og funheitar slepptu aldrei taki
augun kysstust blautum kossi
og kinnar tóku við tárum bleikum…

hendur okkar gláptu glaðar
á fingurna anda hraðar
neglurnar orðnar graðar…

húðin byrjaði að stynja upp orðum
en hætti strax því þögnin réði
hárið grét af fryggð og funa
við fengum samt aldrei nóg…

hendur okkar gláptu glaðar
á fingurna anda hraðar
neglurnar orðnar graðar…



blóðið sýður og tíminn líður
augun þorna og bakið svíður
nárakrampi á fullu dampi
fullnæging á vaðið ríður…

fullnægtir og allsnægtir
greddan aldrei hættir
fryggðin heitan hugann laðar
horfðu á mig anda hraðar…



sérhver taug í líkamanum
sameinast í unaði
engin furða að allt ruglist
í alltof miklum munaði…

fullnægingar flæða
fryggðarstunur gnæða
líkamspartar villast
og getnaðarfæri fyllast…



blóðið sýður og tíminn líður
augun þorna og bakið svíður
nárakrampi á fullu dampi
fullnæging á vaðið ríður…

sérhver taug í líkamanum
sameinast í unaði
engin furða að allt ruglist
í alltof miklum munaði…

fryggðin heitan hugann laðar
horfðu á mig anda hraðar…


-pardus-


***Ok… dálítið súr lagatexti :þ Settist niður fyrir framan tölvuna eftir að hafa lesið ljóðið hennar Lory og langaði til að semja eitthvað kynlífstengt. Kannski er ég hermikráka að senda inn klámljóð á svipuðum tíma en ég vona að þú fyrirgefur Lory? ;)***
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.