Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Ringlaður líkami við fullnægingarstig (lagatexti)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hehehe… takktakk! ;)

Re: Úti við sjó

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hmmm… ég er sammála þessu. Ég vissi ekki að 1976 hefði sent þetta inn áður… ef maður er búinn að senda inn efni einu sinni á auðvitað ekki að senda það inn aftur. Takk fyrir upplýsingarnar Lynx ;)

Re: Hinum meginn við gluggann minn.

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mjög flott - sem sagt sjálfsskoðun þar sem þú ert að horfa á sjálfa þig hinum megin við glerið? Maður er alltaf að þessu sjálfur, sérstaklega núna þegar haustið fer að nálgast og dumbungurinn í veðrinu skapar umhugsunaraðstæður. *Dæs…*

Re: Nokkur ljóð eftir mig

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Úff… þetta er dísætur sykurpúði sem hefur verið dýft í hunangssýróp! Alltof væmið verð ég að segja. Það er mjög fínt þegar fólk er happí og vill setja það í ljóð - en kannski að fara aðeins í kringum hlutina og geyma sætleikann innan í umbúðunum?

Re: Ég dó ,

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Furðulegt, mjög svo furðulegt ljóð. Meina það reyndar í góðu, þetta er frumlegt og það er hellingur af góðum punktum þarna. Endar enn skringilegar!

Re: komin framyfir seinasta söludag

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Sammála síðasta ræðumanni. Virkilega dapurlegt og satt :/ Svona er þetta því miður oft - þetta ljóð nær að fanga boðskapinn ágætlega.

Re: Minnsti skemmtistaður í heimi.

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Úffúffúff! Fjallar þetta ljóð um það sem ég held að það fjalli um? ;) Skemmtilegt myndmál; “með lostafullar varirnar að vopni”, “dyravörður á minnsta skemmtistað í heimi” o.s.frv. :) Alltaf gaman að sjá eitthvað nýtt frá þér!

Re: Utan fyrir kassann

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Vó! Töluverð geðveiki í þessu ljóði… alltaf gaman að sjá smá frumleika :)

Re: Úti við sjó

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Minnir dálítið á Bubba og boðskap hans, sér í lagi lagið “Aldrei fór ég suður”. Þetta er ágætis ljóð, það er svolítið óþjált en efnið bætir það upp.

Re: Hugsun

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Fínt ljóð og skemmtileg pæling.

Re: Á svona degi

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Awwww… yndislega sætt :) Myndmál og hunangshjúpaður sætleikinn notaður til að lýsa einni unaðslegri stund, svo ég sé smá hátíðlegur ;) Flott ljóð! kv. pardus

Re: Heill horfna garðyrkjumanninum

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Samþyggir: Samþykkir Sjáf: Sjálf Reinslann: Reynslan Samþygt: Samþykkt Reinslu littlu: Reynslulitlu Þú ættir ekki að vera með skítkast hérna 1976. Hún Lynx er mjög gott ljóðskáld og hefur fengið góða krítík almennt séð. Hvað varðar stafsetningu þína 1976, þá mætti halda að þú værir mun yngri en þú ert - að spyrja svona barnalegra spurninga eins og: “duuhh… hvur er aldur þinn 18-19?” lýsir bara þínum eigin barnaskap. Ljóðasíða huga er ekki vettvangur fyrir saurkast.

Re: Samt svo

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Mjög flottar fyrstu 5 línurnar - góðar andstæður. En þú mættir kannski íhuga endinn aðeins betur?

Re: Lífið er sigling

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hmmm… þetta er ágætis hugmynd og bæði erindin byrja nokkuð vel. En þú mættir eiginlega sleppa ríminu í lokin á þeim, myndi hljóma miklu betur ef þú leyfðir þessu bara að vera óhefbundið og órímað (dálítið óþjált svona).

Re: A letter sans ink

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Blandað saman við söng Maynard James Keenan hjá Tool, flottan bassa, ískrandi gítar og dynjandi trommur… yrði þetta asskoti flott! :) Flott sem lagatexti - er til eitthvað lag við þetta?

Re: Ársuppgjör forstöðumanns sálarinnar (21. árgangur)

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Vó, takk fyrir hrósin ;) Þetta ljóð fjallar nottla um þessa nokkra daga á ári sem maður tekur sig í sjálfsskoðun og ætlar að breyta öllu; Drekka minna, hætta að reykja, eyða minni pening, vera duglegri að vakna á morgnana, drekka minna kaffi og hætta þessu fokkings blóti. Eeeen… sem betur fer stendur þetta yfir í stuttan tíma og maður nær sér af þessu rugli! :þ Annars rignir nú engum tilboðum inn sko :S Ætli fólk sé ekki bara að bíða eftir að hlutabréfaverðið í sjálfum mér lækki aftur og...

Re: Góðan dag

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þetta er svo myndrænt og áþreifanlegt að það er ekki hægt annað en að setja sig í spor litlu stelpunnar :/ Þetta er frábært ljóð! Sérstaklega hugmyndin um að hún fari aftur í minningarnar til að rifja upp eitthvað gott úr lífi sínu - hangir svo á þessari minningu til að nota hana til huggunar síðar meir! Djísús! Ábyggilega eitt það besta sem ég hef séð frá þér! :) Ég hef sjálfur reynt að semja ljóð um heimilisofbeldi og ofbeldi á börnum (“Sifjaspell nútímans” og “…skildu börnin sjá líkt og...

Re: Xxxx ||

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ehmmm… já! Ég mundi samt eftir hinu ljóðinu og vissi að það fjallaði um sömu manneskju. Mundi ekki alveg hvernig það hljómaði en allavega fannst mér það flott :) Kannski þú ættir að skella því inn við tækifæri?

Re: Mátti reyna...?

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Pfffffffff…! Mér finnst rosalega gaman að BEITA kaldhæðni en þegar henni er beitt á mig er það ekkert sérstaklega fyndið! :þ *Snökt!Snökt!* ;)

Re: Xxxx ||

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þetta er svakalega fallegt hjá þér! ;) Sársaukafullt ástarsorgarljóð og með magnað myndmál, sérstaklega þetta: “Ein, með fölnaða rós í hjartanu, sem blómstraði aðeins fyrir hana.” Vá! Ég var reyndar búinn að sjá þetta ljóð á annarri ljóðaheimasíðu og heillaðist af því þar. Gaman að sjá að þú hafir loksins skellt því inn hingað :) kv. Danni

Re: Mátti reyna...?

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Tja… eiginlega ekki ég heldur :þ Jú sko… þetta er aðferð mín til að ferðast um tímann (þess vegna átti það fyrst að heita “Tímavél fyrir geðsjúklinga”!) ;) Annars er ég ekkert sérlega ánægður með þetta ljóð - var eiginlega tilraun til að vera “geðveikislega” fyndinn (bókstaflega) en ég held að það hafi ekki alveg heppnast í þetta skiptið :S

Re: Saklausar sálir í réttu ljósi?

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hmmm… þú hefur aðeins misskilið ljóðið sko. Þegar ég talaði um afgreiðslustelpu í Nóatúni, þá ímyndaði ég mér einhverja afgreiðslustelpu í einhverri verslun (ekki endilega Nóatúni - kom bara fyrst upp í hugann þar sem ég versla langoftast þar :þ)

Re: Lory

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Vó maður! Þetta er svakalega flott og myndrænt ljóð! Ein besta lýsing á augnaaðdráttarafli sem ég hef séð lengi ;) Ég er samt ansi sammála - þessi augu hennar eru frekar mögnuð ;) kv. pardus

Re: Saklausar sálir í réttu ljósi?

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hahahaha! “Prófa þú að vera á fjórum…?!” Varstu kannski búin að gleyma hvers kyns ég er? :þ Efast stórlega um að þær kringumstæður komi nokkurn tíma upp í mínu lífi! Aldrei að segja aldrei… en ég stefni allavega ekki á þessa stellingu - með mig fyrir framan ;)

Re: Kviksyndi

í Ljóð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Myndmál: Perfect Efni: Perfect Niðurlag: Perfect Þessa krítík gæti ég kóperað og sett á öll ljóðin þín upp á síðkastið! You are on fire! ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok