Hvenær kemur arftaki C-150/152 ? Sæl öllsömul,

Ég verð nú að lýsa áhuga mínum á því að það er kominn tími til að flugvélaframleiðendur vakni upp og fari að framleiða nýja tegund af kennsluflugvél til að leysa af hólmi gamlar vélar sem eru um það bil að verða úreltar sökum slits og tæringar.

Því langar mig til að benda ykkur á flugvél sem er um það bil að komast á markaðinn. Búið er að samþykkja tegundina og er framleiðsla um það bil að hefjast. Eini gallinn á gjöf Njarðar er að ef þú myndir panta þessa vél í dag, þá tæki það væntanlega 2 til 3 ár að fá hana afhenta, þar sem framleiðslugeta verksmiðjunnar er lítil fyrst um sinn. Þeir ætla að taka lífinu rólega og áætlanir gera ráð fyrir 2001 eru 10 vélar, 30 í 2002 og allt að 50 árið 2003.

Einhverjum kann að þykja þessi vél lík Katana sem var prófuð m.a. hér á Íslandi hjá Flugtaki. Mín skoðun er sú að fyrir utan sama mótor og skrúfu þá erum við að horfa á hluti í þessari vél sem er lagfæring á göllum hennar. Þeir eru t.d.: Nefhjólsstýring, en Katana var ekki með hana heldur sveiflaðist nefhjólið og stýrt var með bremsum. Nefgírinn á Katana átti það líka til að springa og jafnvel brotna af. Eflaust væri hægt að tína til ýmis önnur atriði sem eru til bóta.

Það sem gerir vélina áhugaverða, m.a. fyrir Íslenskar aðstæður, er að flugtaksrun er 250 metrar og lending er 200 metrar. Farflugshraði er 130 kts, og flugdrægi er 700NM. Það liggur við að þessar tölur séu of góðar til að vera sannar en það væri gaman að prófa svona afköst á 100 hestafla vél.

Nú er bara um að gera að fara og panta sér eitt eða fleiri stykki!

Hér eru nokkrar afkastatölur:

Performance and technical data

Powerplant ROTAX 912S
Cylinders 4
Power 100 hp

Propeller hydr. constant speed, 2-blades

Specifications

Wing Span 10.3 m 33.8 ft
Wing Area 10.5 m² 113 sqft
Length 7.3 m 24 ft
Height 2.3 m 7.5 ft
Fuselage Width 1.2 m 47.24 in
Baggage Hold 0.5 m³ 18 cuft

Weights & Capacities

Empty Weight 490 kg 1,080 lb
Max. T/O Weight 750 kg 1,654 lb
Useful Load 260 kg 573 lb
Seats 2
Fuel Capacity 120 l 32 gal(US)
Fuel Specification EURO 95 unleaded AVGAS 100LL

Performance

Max. Speed 305 km/h, 165 kts 190 mph
Cruise Speed 75% 240 km/h, 130 kts 276 mph
Min. Speed 81 km/h, 44 kts 50 mph
Range in 5000 ft
75% Power 1,300 km, 700 NM
Operating Ceiling 4,450 m, 14,500 ft


Nánari upplýsingar eru á http://www.aquila-aero.com

Kveðja,

Otri