Það er ekki neitt eitt sem er rétt og í raun ekkert sem er rangt. En það eru til nokkrar “reglur” sem er gott að læra og æfa sig að nota (það er vinsælt að segja að maður lærir fyrst reglurnar, síðan lærir maður að brjóta þær). Ef hljómagangur er í einni tóntegund, t.d. A moll, þá getur maður spilað A moll pentatónlískan skala eða A moll skala yfir allan hljómaganginn. Hljómagangur í A moll getur haft þessa hljóma (með eða án sjöundinni): Am7, Bm7b5, Cmaj7, Dm7, Em7, Fmaj7 og G7. (þetta eru...