Ég sé að þú kannt að meta góðan jazz og ætla ég þessvegna að mæla með plötunum “the incredible jazz guitar” og “full house” með wes montgomery, einum merkasta gítarleikara jazzsögunnar. Svo er skítnettur píanóleikari sem heitir Jaques Loussier (hann kom á klakann fyrir mjög stuttu síðan) sem spilar sígild verk í djassbúningi ásamt trioinu sínu sem heitir því skemmtilega nafni “Jaques Loussier Trio” Hann er að vísu soldið kommörsjal þannig að það er til alveg bönsj mikið af plötum með honum...