Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Úrslitaeinvígi NBA

í Körfubolti fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Common ekki segja að Jordan hafi ekki verið með stórt egó!! Gaurinn var einn mesti egomaniac í deildinni, hann varð að vera maðurinn hann varð að vera betri en Thomas,Magic,Bird,Wilkins ofl hann varð alltaf ef einhver var sagður betri en hann að keyra sig allan út og sína að hann væri bestur. Hann þoldi ekki þegar hann var undir 30 að nokkur leikmaður í hans liði myndi ögra honum eða vera betri en hann á æfingum. En þetta eru bara neikvæðu hliðarnar af egóinu allir svo kallaðir Great...

Re: Úrslitaeinvígi NBA

í Körfubolti fyrir 20 árum, 11 mánuðum
ég held að fólk eigi ekki að vera tala um að þetta verði endilega leiðinlegt einvígi útaf lágu stigaskori, málið er að sérstaklega Pistons eru þannig lið að þeir vilja hægja á leiknum og spila harða vörn en eins og við sáum frá spurs á móti suns þá geta þeir í rauninni spilað hvaða leikstíl sem er. en ég held þetta verði skemtilegt einvígi, hef samt á tilfiningunni að Spurs taki þetta í 5-6 leikjum en það verður mikið um baráttu og sterkan varnarleik báðum meginn, þó verða undantekningar það...

Re: Contender

í Box fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Flottir þættir sá fyrsta þáttinn hérna um daginn og hlakka bara til að hafa eitthvað áhugavert að glápa á mánudagskvöldum :)

Re: Það sem er að gerast framundan í boxinu

í Box fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Eastman er breskur með 40 sigra 34 rothögg og 1 tap árið held ég 2001 á móti William Joppy sem hann tapaði á split decision, málið í þeim bardaga var að það var í fyrsta sinn sem þetta var svona Stórbardagi hjá Eastman og hann var ekki nógu duglegur í fyrstu 6 lotunum en kom á síðari hluta bardagans meðal annars sló Joppy niður í 12 lotu og rotaði hann næstum en það var ekki nóg, ég man eftir þegar þessi bardagi var að mér fannst Eastman hafa átt skilið að vinna og þar á meðal the ring...

Re: Það sem er að gerast framundan í boxinu

í Box fyrir 21 árum, 3 mánuðum
úff maður það er enginn bardagi með ruiz sem ég verð einu sinni hálfspentur að bíða eftir! get bara ekki horft á þann mann djöful í hringnum eða lesið hvað þetta fávita þjálfara fífl hans hefur að segja! en annar ég hef ekki séð neitt auglíst á sýn að þeir síni bardagann milli spinks og judah núna á laugardaginn :( ég er búinn að senda þeim og hvet alla til að senda og kvarta og biðja þá um að sína helv…. bardagann!!!!

Re: Það sem er að gerast framundan í boxinu

í Box fyrir 21 árum, 3 mánuðum
nah Bruno var aldrei neinn Lennox, plús hann hafði þegar tapað fyrir honum einu sinni áður árið 88, að rota Bruno og Bruce Seldon er ekki eitthvað sem er merkilegt, þetta eru gaurar sem Holifield,Lennox og Bowe ef þeir hefðu rotað þessa gaura sem þeir reyndar gerðu fengu lítið credid fyrir það! staðreindin er líka að Tyson barðist aldrei við Lennox ekki heldur Bowe hvorugur var tilbúinn að mæta honum, of mikil áhætta fyrir of lítinn pening sennilega. Tyson árið 96 komst aldrei nálægt því að...

Re: Það sem er að gerast framundan í boxinu

í Box fyrir 21 árum, 3 mánuðum
hehe jájá um að gera að halda áfram að idoliza þennan gaur! sama þó hann sé by far ofmetnasti hnefaleikari sögunnar og er LÖNGU LÖNGU útbrunnin!!! síðast þegar Tyson virkilega gat sagst vera bestur í heiminum var árið 1989, það eru 16 ár síðan, 16 ár! Eftir hann tapaði fyrir Buster Douglas hefur hann ekki verið sannur meistari enda var sýndi Douglas fram á hvernig þu getur unnið hann.

Re: Það sem er að gerast framundan í boxinu

í Box fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Af því Tyson er næstum í 40 ára, hefur ekki unnið á móti topp 10 boxara síðan 1995 og hefur verið rotaður í tveim af síðustu 3 bardögunum sem hann hefur barist! Hann er einfaldlega löngu löngu löngu búinn sem einhverskonar topp boxari! Ef hann heldur áfram að berjast er eina ástæðan peningar og ekkert annað, hann á aldrei eftir að vinna heimsmeistara titil eða nokkuð þannig.

Re: Anskotans sýn!!

í Box fyrir 21 árum, 6 mánuðum
ég var ekki heima síðustu helgi en er sýn búin að sína bardagann milli trinidad og mayorga?

Re: Anskotans sýn!!

í Box fyrir 21 árum, 7 mánuðum
já einmitt það ætti ekki að hafa verið neitt vesen með að sýna frá þessum bardaga!!! Trinidad er eitt að stærstu nöfnunum í boxinu í dag og undanfarin ár bætir því við að hann var að berjast sinn fyrsta bardaga í 2 ár og ekki á móti neinum ræfli eins og svo margir hafa gert, Tyson t,d gerði þetta í næstum 10 ár og alltaf voru þeir drasl bardagar sýndir.. En já Mayorga fyrrverandi óumdeildur 147 punda meistari og einn lang mest spennandi boxari í heiminum í dag báðir menn sem eru sluggers...

Re: á Ak?

í Box fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hafðu samband við Sigga í vaxtarræktinni hann hefur verið að sjá um þetta, síðast þegar ég vissi var eitthvað vesen með að redda húsnæði en það eru allar græjur til í þetta.

Re: Goðsögnin tapar

í Box fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Tyson tapaði…. so? Hann var Löngu búinn! Williams er ágætis boxari kannski topp 10 en verður aldrei great, Tyson var orðspor hann var góður dómineraði í virkilega veikum þungaviktar flokki frá 86-89 það eru 3 ár Buster Douglas sýndi hvað þurfti til að sigra hann enda eftir það var hann laminn af þeim boxurum sem virkilega geta talist hafa verið góðir. Tyson er lang lang ofmetnasti íþróttamaður tjah gæti sagt í sögunni meðað við hvað hann afrekaði lítið á ferlinum

Re: Vilt þú æfa box?

í Box fyrir 21 árum, 8 mánuðum
það er fullkomlega þitt val hvort þú stígur inní hringinn til að boxa, að æfa box er einhver sú albesta líkamsrækt sem hægt er að stunda. ég til dæmis hef verið að æfa í nokkra mánuði en hef engan áhuga að fara í hringinn, ég æfi bara vegna þess að mér fynnst þetta gaman og virkilega góð æfing. annað ólimpískir eða áhugamanna hnefaleikar og atvinnu hnefaleikar sem þú sérð í sjónvarpinu er langt frá að vera sama íþróttin. áhugamanna box er Sport, þar færðu stig fyrir að snerta andstæðinginn,...

Re: Körfubolti!

í Körfubolti fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Skór gamlir and1 skór sem er að singja sitt ´siðasta, fann mér kobe bryant skó held ég frá 99-01 eða eitthvað þannig sem áttu að kosta þegar þeir voru nýjir 17000 kall en fékk þá á 5000 og var að prufukeyra þá í kvöld og er ekki frá því að þetta séu bara nokkuð vel magnaðir skór! á engan bolta. nike og and1 bolir og stuttbuxur.. adidas headband Lakers hefur alltaf verið uppáhalds liði frá því 89 þegar ég var polli og sá Kareem og Magic. Kobe er sennilega uppáhalds leikmaðurinn þar sem hann...

Re: Hjálp

í Rómantík fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Dúd sorry maður en það er víst bara þannig að allveg sama þó þið hafið verið svona lengi saman þá ef hún hefur ekki áhuga þá er þetta bara dautt dæmi, stittist í að hún byrji með öðrum þetta er bara búið og ég veit það er erfiðast í heimi að sætta sig við það eftir allan þennan tíma en þú verður bara að move on og vonandi finnurðu þér flotta stelpu bráðum…

Re: Undrabarn?

í Körfubolti fyrir 22 árum, 1 mánuði
neibb þessi gaur er ég eiginlega 100% viss um að hafi aldrei verið á forsíðu Slam, sá sem var á forsíðunni með James þegar þeir voru báðir í high school var gaur sem heiti Sebastian Telfair og er pg, frændi Stephon Marbury. en takk fyrir tipsið verð að reyna kynna mér þennan gau

Re: Óþægilegt.. :(

í Rómantík fyrir 22 árum, 4 mánuðum
shit hvað þetta er low!!! maður er ekki með stelpu sem vinur manns var með það er bara Regla og ósiðlegt nema vinurinn hafi sagt manni að það væri ´fínu lagi og væri kannski sjálfur kominn með stelpu, en þetta er bara bannað! shit ef einhver vina minna hefði byrjað með eða verið eitthvað með minni ex shit hvað ég hefði snappað og lamið þann dreng!

Re: Hvernig væri ykkar DREAM TEAM?

í Körfubolti fyrir 22 árum, 6 mánuðum
allra tíma magic johnson michael jordan larry bird karl malone hakeem olajuvon

Re: Hvernig væri ykkar DREAM TEAM?

í Körfubolti fyrir 22 árum, 6 mánuðum
í dag yrði það Duncan Garnett Macrady Kobe Stephon Marbury

Re: Framtíðar boxari.......

í Box fyrir 22 árum, 6 mánuðum
það sem skiptir mestu er að læra fótaburðinn,vörnina og líkamsbeitinguna í höggunum, það er sérstaklega mikilvægt fyrir þig að æfa og læra fótaburðinn ná fullkomnu jafnvægi og svona leverage og þá færðu líka meiri kraft í högginn ert tilbúinn að taka betur höggin og koma inn með gagnhögg. það besta fyrir þig væri að fara á námskeið, það var námskeið hérna á akureyri um daginn sem Gauji frá keflavík hélt og við lærðum ótrúlega mikið um þessa helgi og ég mæli tvímælalaust með því að fara á...

Re: Léttu kallarnir geta líka rokkað!!

í Box fyrir 22 árum, 9 mánuðum
ég verð nú fyrir gríðarlegum vonbrigðum ef sýn sýnir ekki Corrales vs Casamayor eað og Marquez vs Gayner báðir virkilega áhugaverðir bardagar sem mig langar að sjá. En ég bara má til með að deila við þig um þetta sem þú sagðir: Freitas sannaði að hann er fremstur meðal jafningja þegar hann sigraði Casamayor um árið. Sko í fyrsta lagi þá var þetta virkilega umdeildur sigur en jájá allt í lagi með það svosem þar sem umdeildir sigrar í boxi eru algengir en það sem mér fynnst verst með Freitas...

Re: Vargas kominn aftur!

í Box fyrir 22 árum, 9 mánuðum
æji veistu hann átti bjarta framtíð en hann á aldrei eftir ða verða neinn Great boxari úr þessu, hann hefur verið afhjúpaður með að vera með ? kinn og geta verið rotaður og meiddur. ég var virkilega hrifinn af honum þegar ég sá hann sigra Campas og vinna titilinn og eins þegar hann sigraði Quartey en málið bara með hann að hann hætti að boxa eins og hann gerði á þeim tíma fyrir löngu síðan og ég sé hann ekki verða eins fær aftur.

Re: Vá hvað Vesturdeildin verður rosaleg í ár!!

í Körfubolti fyrir 22 árum, 9 mánuðum
já minnesota eru orðnir all rosalegir!!! þeir eru með Cassell,Sprewell,Garnett,Wally þarna nafn,Olowokandi og síðan Troy Hudson! Ef maður ætti að raða svona power rankings myndi ég hafa þetta svona. 1 Spurs þeir eru meistarar plús eru þeir búnir að fá Rasho Nesterovitch í staðinn fyrir Robinson síðan fengu þeir Hedu Turkoglu og Ron Mercer í skiptum við Indiana og Sacramento um daginn plús eru Ginobili og Parker ári eldri ásamt Stephen Jackson þannig Spurs eru liðið til að sigra. 2 Lakers en...

Re: Hvað er uppáhaldsliðið ykkar?

í Körfubolti fyrir 22 árum, 9 mánuðum
já það er allveg rétt hjá þér hann var magnaður bæði 2001 og 2000 en málið með hann er að hann er leikmaður sem á að koma inn af bekknum og vera ferskur svona nokkurskonar leinivopn en ekki byrjunarleikmaður sem spilar 30 plús mín í leik.

Re: Lífsreynslusaga

í Rómantík fyrir 22 árum, 9 mánuðum
úff þetta er hræðilegt! ég átti vin sem gerði það sama og Svenni fyrir stuttu og var í svipuðum málum og hann það er að segja aftur kominn í neyslu nýlega hættur með stóru ástinni í lífi sínu hann var aðeins 18 ára. fíkniefni eru vægast sagt hræðileg og eiðileggja ekki bara líf manneskjunnar sem tekur þau heldur allara sem standa henni nálægt og þá sérstaklega foreldra og konur/kærustur. Lyra ég virkilega vona að þér eigi eftir að líða betur og vona bara að þú minnist góðu stundanna og...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok