Ég bara verð að segja frá þessu…
Hefur einhver hérna lesið um Derrick Caracter? Ef ekki, þá ætla ég að segja aðeins frá honum. Hann er jafnaldri minn, s.s. fæddur ‘88 og er talinn verða eitt mesta fjölmiðlahype næstu ára. Hann er nefnilega vel yfir tvo metra, 2,05, og 130 kíló, nánast bara massi. Þessi 15 ára krakki var að spila með St. Patrick’s High School í fyrra og var með 28 stig, 15 fráköst og 9 stoðsendingar á sínu fyrsta miðskólaári, alveg ótrúlegar tölur. Það verður líka gaman að sjá hvernig hann verður eftir nokkur ár en hann á án efa eftir að stækka og þyngjast eitthvað. Núna er hann farinn til annars skóla sem ég er ekki alveg með á hreinu hvað nafn hans er.
Samt verður það að teljast skrýtið þegar 15 ára krakki er búinn að koma oft fram á ESPN og vera á forsíðu körfuboltablaðsins SLAM.
Kristján S