Ég er núna bara á síðustu árum búin að vera að uppgötva gullaldartónlistina, finnst mjög margt mjög gott! Ég hélt alltaf að Led Zeppelin væru hundleiðinlegir og nennti ekki einu sinni að gefa þeim séns, en nú þegar ég er búin að vera að hlusta á þá er ég komin með hrikalegt æði fyrir þeim :) Annars - David Bowie, er hægt að kalla það gullaldartónlist? Maðurinn syngur bókstaflega HRÆÐILEGA að mínu mati, en þar sem lögin sjálf eru góð eru þau vænleg til vinsælda ef einhver annar tekur þau upp...