í byrjum desember þá voru mér færðar þær fréttir að gamall besti vinur minn sem var mer halfpartinn bróðir líka, hefði lent í slysi og væri látinn… það tók mig um viku að jafna mig sæmilega á því að mestu leiti. en morgunn ein rétt fyrir jól dreymir mig að einhver sé að sýna mér myndaalbúm af gömlu skólaballi myndaalbúmið var opnað, flett framhja einni opnu og svo var sagt við mig “þetta er XXXXXXXXX þegar hann var yngri” og bent á 2 myndir(af nýlega látnum gömlum vini). mér fannst þetta svo skrýtið því hann var 9 árum eldri en eg og gekk ekki i sama skola og eg.. jæja ég skoða myndirnar og vakna svo allt í einu og leið einsog eg hefði ekki verið að dreyma, einsog þetta hefði gerst í alvprunni..
en jæja ég opna augun og lít á kærastann minn við hliðiná mér, horfi uppí loft og sný mer svo á magann og halla uagunum því ég nenni ekki að fara´á fætur strax.
þá alltí einu heyri ég svakalegt suð í um 4sec fyrir eyrunum á mér, meira samt öðrum megin,og þvílíkann fiðring um líkamann á mér svo allt í einu hættir suðið og ég heyri orðin “ég heyri í þér” “ég heyri í þér” “ég heyri í þér hljóma í eyrunum á mér.. ég fer að reina að spyrja hvað þetta sé og aftur heyri ég það sama ”ég heyri í þér “eg heyrir í þer” og ég spyr aftur hver þetta sé og hvað sé átt við með að heyra í mér, þá kemur aftur alveg all svakalegt suð það skarst svo í eyrun á mér að ég gat ekki legið lengur afslöppuð með lokunð augaun svo eg lyfti hendini og ýtti á eyrað á mér, en um leið og eg hreyfðist þá hætti suðið… síðann slappaði eg af aftur og reindi að ná ambandi aftur en það varð frekar lélegt.. kom bara suð…

þetta var svo skrýtið, málið er að ég er búin að hugsa mikið um vin minn síðann hann lést og hvað mér þótti vænt um hann þó við hofðum varla talast við sl.2 árin..
ég hef alltaf verið smá næm frá því eg var lítil með smá “hléum” á næmnini inn á milli, ef þið vitið hvað eg á við.
en svo sl. 2 vikur hefur kallin og vinkona min orðið vor við mikið herna inni og sérstaklega kringum barnið okkar, sem eg skil ekki..

en spurning mín er sú ef einhver getur svarað henni: ætli mig hafi verið að dreyma, eða var ég að hugsa/yminda mér eða ætli þetta hafi verið eithvað þeas þegar eg heyrði “ég heyri í þér” getur verið að þetta hafi verið gamli vinur minn? eða er eg orðin rugluð?

aðeins kurteisisleg svör þökkuð en ekki skítköst :)